14 þúsund fjölskyldur fengið mataraðstoð á Gaza

Heim / Fréttir / 14 þúsund fjölskyldur fengið mataraðstoð á Gaza

Frá 7. október 2023 hafa átökin fyrir botni Miðjarðarhafs stigmagnast dag frá degi. Konur og stúlkur hafa verið drepnar í átökunum, orðið fyrir árásum, verið beittar kynbundnu ofbeldi, teknar í gíslingu, neitað um grunnmannréttindi sín og glíma við langvarandi sult.

UN Women ítrekar að allar konur, hvar sem þær búa, verða að geta notið grundvallarmannréttinda.

Mannúðarverkefni UN Women

UN Women hefur verið starfandi í Palestínu frá árinu 1997 og rekur verkefni bæði á Vesturbakkanum og á Gaza. Megnið af verkefnum UN Women í Palestínu miða að því að efla réttindi kvenna á svæðinu. Eftir að átökin hófust í október 2023 hafa verkefni UN Women breyst og miða nú fyrst og fremst að því að veita konum og stúlkum kvenmiðaða neyðaraðstoð.

UN Women hefur veitt 14.000 fjölskyldum þar sem kona er fyrirvinnan mataraðstoð í samstarfi við WFP. Þessi hópur er um 1/3 allra fjölskyldna á Gaza með konu sem fyrirvinnu.

UN Women hefur dreift nauðsynjavörum til kvenna á Gaza. Þessar vörur eru nokkuð sem konur hafa ítrekað kallað eftir, t.d. fatnaður, tíðavörur og þurrmjólk. Þetta er gert í samstarfi við aðrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna.

Lestu meira: Enginn venst sársauka eða hættir að finna fyrir honum

Styðja við þolendur

UN Women hefur einnig stutt við þolendur kynbundins ofbeldis bæði á Vesturbakkanum og á Gaza. UN Women hefur náð til 21.443 einstaklinga (16.650 kvenna og 4.793 karlmanna) frá upphafi átakanna. Þjónustan sem UN Women veitir felur meðal annars í sér ráðgjöf, skjól, endurhæfingu, lagalega aðstoð, sálræna aðstoð og fjárhagsaðstoð.

Þá hefur UN Women unnið með Egypska Rauða Hálfmánanum og jórdönsku félagasamtökunum Hashemite Charitiy Organization við úthlutun 14.000 sæmdarsetta, 2.300 pakka með vetrarfatnaði, 3.200 kvennapakka og 3.793 barnapakka.

Lestu nánar um mannúðarverkefni UN Women í Palestínu hér.

Related Posts