Yfirlýsing UN Women á Íslandi vegna Úkraínu

Heim / Fréttir / Yfirlýsing UN Women á Íslandi vegna Úkraínu

António Guterres á blaðamannafundi.

UN Women á Íslandi deilir áhyggjum framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um velferð úkraínsku þjóðarinnar í kjölfar innrásar rússneska hersins inn í landið.

UN Women hefur verið starfandi í Úkraínu um árabil og mun halda starfi sínu í þágu úkraínskra kvenna og stúlkna áfram. Verkefni UN Women í Úkraínu hafa að miklu leyti snúist að því að efla pólitíska þátttöku kvenna og aðkomu kvenna að friðarviðræðum – en átök hafa staðið í landinu frá 2014, allt síðan rússnesk yfirvöld tóku yfir Krímskaga. Þörfin fyrir verkefni UN Women í Úkraínu hefur því síst minnkað í kjölfar innrásrinnar.

António Guterres, framkvæmdastjóri Sþ, sagði í yfirlýsingu í kjölfar fregna um innrás Rússa að árásin væri í trássi við Stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna sem undirritaður var árið 1945.

Þetta er rangt. Þetta stríðir gegn stofnsáttmálanum. Þetta er óásættanlegt. En þetta er ekki óafturkallanlegt. Hættið hernaðaraðgerðum og kallið hermenn ykkar heim til Rússlands,“ sagði hann.

 

UN Women tryggir að þörfum allra kvenna og stúlkna sé mætt

Stella Samúelsdóttir

Í átökum margfaldast tíðni kynbundins ofbeldis. Þá búa óléttar konur og sængurkonur við aukna ógn við líf og heilsu sína og nýfæddra barna sinna nú er innviðir landsins eru orðin skotmörk rússneska hersins. Konur með fatlanir eiga jafnframt erfiðara með að komast í öruggt skjól og Róma konur, sem eru á meðal þeirra mest jaðarsettu í úkraínsku samfélagi, eiga á hættu að gleymast þegar neyðaraðstoð er veitt. UN Women vinnur að því að tryggja að þörfum allra kvenna og stúlkna sé mætt á tímum átaka.

„Því miður sjáum við það alltof oft að þarfir kvenna og stúlkna gleymast þegar átök eiga sér stað. Ekki nóg með það, heldur eykst tíðni kynbundins ofbeldis samhliða því sem þjónusta við þolendur skerðist. Það er því gríðarlega mikilvægt að UN Women geti áfram veitt konum og stúlkum þjónustu og kvenmiðaða neyðaraðstoð og tryggt að raddir þeirra heyrist við samningaborðið í öllum friðarviðræðum. Eftirlit og eftirfylgni er engu síður mikilvæg svo hægt sé að tryggja að þörfum allra kvenna sé mætt, einnig þeirra jaðarsettustu. Einnig viljum við beina tilmælum til íslenskra stjórnvalda að þau beiti sér fyrir því að tala fyrir þörfum og þátttöku kvenna allstaðar þar sem því verður við komið,“ segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.

UN Women fylgist jafnframt náið með þróun mála í nágrannaríkjum Úkraínu, þangað sem margir hafa flúið í leit að öruggu skjóli. Tryggja þarf að fólki á flótta sé veitt áfallahjálp og neyðaraðstoð við komuna í gistiland.

 

Þú getur hjálpað með því að senda sms-ið KONUR í 1900 (1900kr). Einnig er tekið á móti frjálsum framlögum í gegnum AUR/KASS: 839-0700 og á reikning: 0537-26-55507 / 551090-2489.
Related Posts
Haítí, ágúst 2021, jarðskjálfti UN Women