Vörður aðalbakhjarl FO-herferðar UN Women næstu tvö árin

Heim / Verkefnin / Afnám ofbeldis / Vörður aðalbakhjarl FO-herferðar UN Women næstu tvö árin

Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar trygginga, og Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women Íslandi. Mynd/Íris Dögg Einarsdóttir

Vörður og UN Women á Íslandi hafa gert með sér samning um tveggja ára samstarf vegna árlegrar FO-herferðar UN Women á Íslandi. FO-herferðin er flaggskip UN Women á Íslandi og hafa yfir 100 milljónir safnast frá árinu 2015.  Styrkurinn frá Verði mun standa straum af öllum framleiðslukostnaði FO-vörunnar 2026 og gerir UN Women á Íslandi kleift að senda allar tekjur af FO-herferðinni í sérstakt verkefni. Í ár fer ágóðinn til  verkefni UN Women í Palestínu‏, bæði á Gaza og á Vesturbakkanum.

 

Stolt af samstarfinu við Vörð

„Það er frábært að fá bakhjarl á borð við Vörð fyrir FO-herferðina okkar. Vörður steig ótrúlegt skref í fyrra þegar fyrirtækið bætti við nýrri vernd í heimilistrygginguna sína, sem veitir neyðaraðstoð, í formi fjárhagslegra bóta, fyrir þolendur ofbeldis í nánu sambandi. Það skiptir máli að samfélagið í heild taki þátt í því að uppræta kynbundið ofbeldi, sem Sameinuðu þjóðirnar hafa kallað eitt útbreiddasta mannréttindabrot heims. Fyrirtæki þurfa einnig að taka þátt í þeirri baráttu og Vörður hefur sannarlega gert það. Við erum því mjög stolt af því að tengja FO-herferðina við Vörð. Það er ekki síður mikilvægt að íslensk fyrirtæki horfi samhliða út á við á tímum þegar alþjóðasamvinna á undir högg að sækja og sífellt fleiri ríki draga úr mannúðaraðstoð og þróunarsamvinnu. Þörfin er gríðarleg og fjármagnið í verkefnin hefur aldrei verið minna,” segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.

Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar trygginga, tekur undir orð Stellu og segir mikilvægt að standa vörð um réttindi kvenna alls staðar.

„Aðstoð sem UN Women veitir getur verið lífsbjörg á átakasvæðum. Með söfnun FO‑herferðarinnar getur UN Women staðið vörð um réttindi kvenna og meðal annars veitt verðandi mæðrum heilbrigðisþjónustu og sinnt neyðaraðstoð vegna kynbundins ofbeldis.  Við hjá Verði erum stolt af því að vera aðalbakhjarl FO‑herferðarinnar næstu tvö árin og hvetjum alla til að leggja herferðinni lið og kaupa nýju FO‑húfuna sem fer í sölu í mars,“ segir Guðbjörg Heiða.

 

Mikilvægt að styðja við þolendur

Líkt og fram hefur komið, styður FO-herferðin í ár við verkefni UN Women í Palestínu. Meira en 33.000 konur og stúlkur hafa verið drepnar á Gaza frá því í október 2023. Þó árásum hafi fækkað með tilkomu vopnahlés, er ekki hægt að tala um að friður ríki í Palestínu; hvorki á Gaza, né á Vesturbakkanum.

Vopnahléið hefur ‏þó veitt hjálpar- og mannúðarsamtökum glugga til að koma neyðaraðstoð inn á Gaza. Mikil liggur á að koma vistum inn á svæðið sem hraðast.

„Þegar samfélög upplifa átök, hamfarir eða efnahagskreppur eykst álag á fjölskyldur og tíðni kynbundins ofbeldis færist í aukana. Við höfum séð þetta raungerast hér á Íslandi, þegar Covid-19 stóð yfir, og við sjáum þetta raungerast á Gaza og Vesturbakkanum í dag. Það er því mikilvægt að styðja við þolendur ofbeldis í Palestínu sem og kvenrekin félagasamtök í Palestínu sem veita þjónustu til þolenda,” segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.

UN Women hefur verið starfandi í Palestínu frá árinu 1997. Stofnunin vinnur náið með palestínskum félagasamtökum að ‏því að efla réttindi kvenna og stúlkna. Frá október 2023 hefur starf UN Women í Palestínu breyst og snýst nú að miklu leyti því að veita mannúðaraðstoð. Í samstarfi við palestínsk kvennasamtök og Rauða hálfmánann í Egyptalandi hefur UN Women deilt út 7.803 sæmdarsettum til kvenna. Eins hefur stofnunin veitt 10.040 konum á Gaza og 813 konum á Vesturbakkanum sálræna aðstoð og áfallahjálp. Í heildina hefur UN Women náð til tæplega 100.000 kvenna og fjölskyldna þeirra með ýmsar nauðsynjar. Einnig hefur UN Women unnið að því að koma matvælum til fólks á Gaza í samstarfi við WFP frá upphafi átakanna.

 

Hverju þurfa konur og stúlkur á Gaza nauðsynlega á að halda?

Í stuttu máli skortir ‏þær allt. En konur á svæðinu hafa nefnt nokkur forgangsatriði:

  1. Mat og hreint vatn en einnig aðstöðu til að elda og geyma eigur sínar. Þær þurfa sápu og hreinlætisvörur.
  1. Læknisaðstoð og lyf fyrir börn sín‏. Mörg þjást af magapestum og niðurgangi, sýkingum og hita. Heilbrigðisþjónusta er bráðnauðsynleg, sérstaklega fyrir barnshafandi konur og nýbakaðar mæður sem eru of vannærðar, svo að þær geti haft barn sitt á brjósti.
  1. Dömubindi og aðstöðu til að þvo sér á meðan þær eru á blæðingum.
  1. Beinum fjárframlögum til að geta keypt helstu nauðsynjar – sérstaklega þær konur sem eru einu fyrirvinnur fjölskyldunnar.
  1. Vernd gegn kynbundnu ofbeldi. Tíðni kynbundins ofbeldis eykst verulega í neyðaraðstæðum þegar fjölskyldur eru á flótta, friðhelgi einkalífs glatast og öryggisnet samfélagsins hverfur.

Sálræna aðstoð og félagslegan stuðning til að vinna úr áföllunum, sorginni og ofbeldinu sem þau hafa orðið fyrir og orðið vitni að.

Related Posts