
Konur kjósa margar að flytja annað í leit að betra lífi. UN Women Cambodia/Charles Fox
Fyrir konur og stúlkur eru flutningar á milli svæða og landa oft líflína og besta tækifæri þeirra til betra lífs. Fyrir þær sjálfar og fjölskyldur þeirra. Alþjóðlegur dagur farandfólks er þann 18. desember.
Samt sem áður neyðast margar þeirra til að ferðast á milli staða á óöruggan hátt. Kynbundin mismunun takmarkar ákvarðanatöku þeirra og sjálfstæði og ræður því hverjar flytja, hvert þær fara og hvernig þær ferðast.
Af þeim sökum neyðast margar konur og stúlkur til að ferðast eftir óhefðbundnum og hættulegum leiðum, sem gerir þær berskjaldaðar fyrir kynbundnu ofbeldi, mannránum, mansali og nauðungarvinnu. Við komuna á áfangastað neyðast þær oft til að taka að sér óformleg störf þar sem þær sæta misnotkun, skortir mannsæmandi laun og grundvallarréttindi.
Farandverkakonur leggja mikið af mörkum til efnahagslegrar og félagslegrar þróunar í þeim löndum sem að þær ferðast til. Með því að auka aðgengi kvenna að reglubundnum fólksflutningum er ekki aðeins hægt að vernda þær, og um leið skapa þeim sanngjarnt og öruggt starfsumhverfi, heldur einnig gera þeim kleift að taka fullan og jafnan þátt í samfélaginu.
Sérhver kona og stúlka verður að njóta allra mannréttinda sinna að fullu, óháð stöðu sinni eða uppruna.
Á alþjóðadegi farandfólks hvetjum við öll stjórnvöld til að innleiða alþjóðlegan sáttmála um fólksflutninga.
Saman skulum við gera fólksflutninga að valdeflandi vegferð – þar sem réttindi, reisn og möguleikar hverrar konu og stúlku eru virt og efld, í hverju skrefi.
Hægt er að lesa yfirlýsinguna í heild sinni hér.

