
Aukið ofbeldi og fjöldaofsóknir
UN Women lýsir yfir miklum áhyggjum og fordæmir harðlega áframhaldandi árásir á konur, stúlkur og almenna borgara í og við El Fasher. Þetta kemur fram í nýrri yfirlýsingu sem UN Women sendi frá sér vegna stöðunnar í Súdan.
Í meira en 500 daga hafa konur og stúlkur lifað við umsátur, sprengjuárásir og manngerða hungursneyð. Skýrslur benda til þess að nær 300 þúsund konur og stúlkur (meira en helmingur þeirra 575 þúsund einstaklinga sem eru á svæðinu) séu innilokaðar, lifi á dýrafóðri og laufblöðum og standi frammi fyrir alvarlegu hungri og óöryggi.
Yfirtaka RSF-uppreisnarhersins á El Fasher hefur leitt til enn frekari ofbeldis og fjöldaofsókna – þar á meðal morða, nauðgana, hópnauðgana, kynlífsþrælkunar, nauðungarhjónabanda og mannrána á konum og stúlkum.
Samkvæmt heimildum frá heilbrigðisstofnunum og -starfsfólki á svæðinu, þar á meðal Læknafélagi Súdan, hafa yfir 2.000 óbreyttir borgarar verið drepnir undanfarna daga. Þar á meðal voru konur og stúlkur. Þann 30. október voru nær 500 sjúklingar og aðstandendur þeirra drepnir í árásum á spítala á svæðinu. Þar höfðu margar konur leitað skjóls og læknisaðstoðar. Einnig hafa borist áreiðanlegar fregnir af árásum á heilbrigðisstarfsfólk.
Gervihnattamyndir og myndbandsupptökur sýna eyðilögð heimili, vanvirt lík og fjöldagrafir. Á sama tíma hefur algjört sambandsleysi á svæðinu gert það nær ómögulegt að staðfesta ástandið eða tryggja að mannúðaraðstoð komist á vettvang. Það kemur í veg fyrir að lífsnauðsynleg hjálp nái til kvenna og stúlkna í neyð. Einnig hafa margar konur og stúlkur neyðst til að flýja til Tawila-svæðisins, þar sem yfir 300 þúsund þeirra dvelja nú við mikinn skort á mat, húsaskjóli og heilbrigðisþjónustu.
UN Women skorar á alla aðila og alþjóðasamfélagið að bregðast tafarlaust við til að:
- Stöðva tafarlaust allt ofbeldi og árásir gegn konum, stúlkum og almennum borgurum í El Fasher og tryggja vernd þeirra.
- Tryggja óhindraðan, öruggan og viðvarandi aðgang mannúðaraðstoðar að svæðinu til að veita þeim sem eru föst í átökunum lífsnauðsynlega hjálp.
- Tryggja fulla vernd og örugga leið fyrir konur og stúlkur sem reyna að flýja ofbeldið.
- Tryggja ábyrgð og refsingu fyrir öll ofbeldisverk, þar á meðal skelfilegt kynferðisofbeldi sem konur og stúlkur verða fyrir. Þetta skal gert í samræmi við alþjóðleg mannúðar- og mannréttindalög.
- Auka fjármagn til mannúðarverkefna og samtaka undir forystu kvenna, sem enn búa við alvarlegan fjárskort. Þetta er mikilvægt til að tryggja að lífsnauðsynleg aðstoð nái til kvenna og stúlkna í neyð.
Konur eru ekki einungis þolendur þessa stríðs, þær eru einnig drifkraftur friðar, seiglu og endurreisnar. Forysta þeirra og raddir verða að vera í forgrunni alls mannúðar-, friðar- og uppbyggingarstarfs til að koma á friði og reisn í Darfúr og um allt Súdan.
UN Women hvetur alþjóðasamfélagið eindregið til að sameinast í skjótum aðgerðum til að stöðva ofbeldið, vernda almenna borgara og standa vörð um réttindi og reisn allra kvenna og stúlkna í Súdan.
Þú getur lagt þitt af mörkum
Með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðili (Ljósberi) UN Women á Íslandi styður þú við verkefni UN Women um allan heim, þar á meðal í Súdan.
Meginhlutverk UN Women á heimsvísu er:
- Afnám ofbeldis gegn konum og stúlkum
- Kvenmiðuð neyðaraðstoð
- Útrýming fátæktar
- Að efla pólitíska þátttöku kvenna
- Konur, friður og öryggi
Þú getur einnig lagt til frjáls framlög (og sett „Súdan“ í tilvísun):
Í gegnum AUR í númerið 123-839-0700
Leggðu til frjáls framlög í banka:
Reikningsnúmer: 0537–26–55505
Kennitala: 551090-2489

