
SADA Cooperative er fyrirtæki sem rekið er af tyrkneskum konum og konum á flótta. Mynd/Erlendur Sveinsson
„Þetta er í fyrsta sinn sem 66°Norður tekur þátt í verkefni sem þessu. Það hefur verið lærdómsríkt og krefjandi á stundum, en fyrst og fremst alveg ofboðslega gefandi. Við hlökkum mjög til þess að sýna afrakstur verkefnisins og kynna starfsemi SADA betur fyrir Íslendingum,“ segir Aldís Eik, hjá 66°Norður. Fyrirtækið efnir til viðburðar í Höfuðstöðinni í samstarfi við UN Women á Íslandi, þriðjudaginn 4. nóvember á milli kl. 17:00 og 19:00.
Tilgangur viðburðarins er tvíþættur: annars vegar að forsýna sameiginlegt verkefni 66°Norður og UN Women á Íslandi í samstarfi við SADA Cooperative í Tyrklandi; hins vegar að blása til listasmiðju í anda Höfuðstöðvarinnar, þar sem unnið er með vörur frá SADA. Hægt verður að skreyta og sérsníða vörurnar meðal annars með efnisbútum úr framleiðslu 66°Norður.
Öruggt rými fyrir konur á flótta
SADA Cooperative er fyrirtæki sem stofnað var af konum á flótta í samstarfi við tyrkneskar konur, með stuðningi UN Women í Tyrklandi. Markmiðið var að efla félagstengsl, atvinnutækifæri og fjárhagslegt sjálfstæði kvennanna sem standa að baki SADA. Samstarf 66°Norður og UN Women á Íslandi mun skapa tekjur fyrir konurnar og stuðla að áframhaldandi starfsemi SADA Cooperative.
„Tyrkland er það land í heiminum sem hefur hýst lang flest fólk á flótta frá Sýrlandi. Mörg, og sérstaklega konur, hafa átt erfitt með að sjá fyrir sér og komast inn í tyrkneskt samfélag. Frá því að ný stjórn tók völd í Sýrlandi í lok árs 2024, hefur mikill fjöldi fólks snúið aftur heim eftir áralanga dvöl í Tyrklandi. Það eru þó enn um 1,2 milljónir sýrlenskra kvenna með tímabundna vernd í Tyrklandi,“ segir Sara McMahon, kynningarstýra UN Women á Íslandi.
Flúði heimili sitt í Aleppó
66°Norður og UN Women á Íslandi heimsóttu Gaziantep í september 2022. Með í för var leikstjórinn Erlendur Sveinsson, sem framleiddi tvær stuttar heimildamyndir þar sem saga tveggja SADA-kvenna er sögð. Fylgst er með Khtem Kujjeh sem flúði heimili sitt í Aleppó, ásamt eiginmanni og tveimur börnum, í upphafi stríðsins. Fjölskyldan dvaldi fyrstu árin í flóttamannabúðum þar sem eiginmaður Khtem lést eftir veikindi. Stuttu síðar fengu hún og börn hennar vernd í Tyrklandi. Khtem var í hópi þeirra Sýrlendinga sem sneru aftur heim skömmu eftir að ný stjórn tók völd í árslok 2024.
Í seinni myndinni er sögð saga Asuman Çiğit, sem er fædd í borginni Kahramanmaraş í suður Tyrklandi. Hún er menntaður félagsráðgjafi og starfaði sem slíkur áður en hún missti vinnuna. Það reyndist henni erfitt að finna aðra vinnu og hún sótti félagsskap og stuðning í SADA.
Áföll höfðu áhrif á verkefnið

Khtem Kujjeh situr við saumaskap. Mynd/Erlendur Sveinsson
Hrina stórra jarðskjálfta reið yfir suður Tyrkland og norðurhluta Sýrlands 6. febrúar 2023. Jarðskjálfti að stærð 7,8 átti upptök sín við Gaziantep og olli gríðarlegri eyðileggingu í borginni og nærliggjandi svæðum.
„Það var mikið áfall að lesa fréttir á íslenskum miðlum um jarðskjálftann og ná engu sambandi við samstarfsfólk okkar úti,“ rifjar Sara upp. Fljótlega fengust þó þær upplýsingar að allar SADA-konur væru óhultar og starfsfólk UN Women í Tyrklandi sömuleiðis. Næstu dagana á eftir skjálftann fengust frekari upplýsingar frá svæðinu; meirihluti tyrknesku kvennanna hafði flúið borgina en sýrlenskir meðlimir SADA sættu tímabundnu farbanni og höfðust við á götunni fyrst um sinn, eða allt þar til yfirvöld komu upp tjaldbúðum.
„Vegna ástandsins reyndist nauðsynlegt að bregðast við breyttum aðstæðum, m.a. vegna þess að húsið sem hýsti vinnuaðstöðu SADA skemmdist í skjálftanum. Úr varð að við keyptum upp allan þann lager sem SADA átti – það eru einmitt þær vörur sem verða til sölu á viðburðinum og rennur allt fjármagn beint til SADA-kvenna,“ segir Sara.
66°Norður og UN Women á Íslandi hvetja öll til að mæta á þennan einstaka viðburð, fræðast um verkefnið, njóta félagsskapar og veitinga og styrkja um leið einstakt verkefni. Á listasmiðjunni verður hægt að velja á milli símahulsturs og tölvutösku. Verð er 2.000 – 2.500 kr og innifalið í verðinu er allur efniskostnaður og drykkur.
Verkefnið er styrkt af Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífsins um þróunarsamvinnu.

