UN Women kallar eftir tafarlausu vopnahléi á Gaza

Heim / Fréttir / UN Women kallar eftir tafarlausu vopnahléi á Gaza

1,4 milljónir hafast við í Rafah sem er nú undir árásum.

Landamæraborgin Rafah á Gaza hefur verið helsta skjól þeirra þúsunda Palestínufólks sem flúið hefur árásir Ísraela á Gaza. Árásir Ísraels á Gaza hafa staðið yfir linnulaust í meira en sjö mánuði, ef frá er talið stutt vopnahlé í nóvember 2023. Fyrir stríð bjuggu um 250.000 íbúar í Rafah-borg, en fjöldinn sem dvelur þar nú telur um 1,4 milljónir. Árásirnar sem hófust á Rafah í gær munu stórauka neyð þeirra 700.000 kvenna og stúlkna sem þar dvelja.

Frá upphafi stríðsins hafa um 10.000 palestínskar konur verið drepnar, þeirra á meðal voru um 6.000 mæður, sem láta eftir sig um 19.000 umkomulaus börn.

„Það er enginn staður öruggur. Ég óttast um líf mitt, líf eiginmanns míns og barna minna. Þó að ég mundi tala um þessa atburði næstu hundrað árin, kæmist ég samt ekki nálægt því að útskýra fyrir ykkur þann yfirþyrmandi ótta sem ég bý stöðugt við,“ hafði UN Women í Palestínu eftir 45 ára gamalli konu sem dvelur í Rafah.

Andleg heilsa fólks mjög slæm

Ný örskýrsla UN Women um stöðu kvenna og stúlkna á Rafah leiddi í ljós að 93% kvenna upplifa sig óöruggar á dvalarstað sínum. 80% þeirra glíma við þunglyndi og depurð, 66% segja frá langvarandi svefnleysi og 70% glíma við mikinn kvíða og fá tíðar martraðir.

Helmingur kvennanna segist þurfa á bráðri læknisaðstoð að halda, en 62% þeirra segjast hvorki geta greitt fyrir læknisþjónustu né lyf. Sex af hverjum tíu barnshafandi konum lýsa erfiðum fylgikvillum á meðgöngu, 95% þeirra glíma við þvagfærasýkingu, 80% þeirra glíma við blóðleysi, 30% gengu í gegnum fyrirburafæðingu og 50% sögðust vera með of háan blóðþrýsting. 72% kvenna með börn á brjósti sögðust eiga í erfiðleikum með að framleiða næga mjólk fyrir barnið.

Konur í Rafah sögðu frá sorginni yfir því að geta ekki verndað börn sín og komið í veg fyrir að andleg og líkamleg heilsa þeirra hraki. Konur taka að mestu á sig auknar byrðar við að vernda börn og eldra fólk fyrir því gríðarlega álagi sem fylgir því að búa við stöðugt stríðsástand.

„Konur og stúlkur í Rafah, og á öllu Gaza-svæðinu, búa í stöðugum ótta. Innrás inn í Rafah stofnar lífi þúsunda í hættu og þvingar hundruð þúsunda aftur á flótta. Við verðum að vernda almenna borgara. Við verðum að tryggja vopnahlé strax og tryggja óhindrað aðgengi neyðar- og mannúðaraðstoðar inn á svæðið. Þörfin fyrir friði hefur aldrei verið meiri en nú. Vopnahlé er okkar eina von,“ sagði Sima Bahous, framkvæmdastýra UN Women, í gær.

UN Women kallar eftir því að ályktun 2728 sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti þann 25. mars 2024 verði innleidd strax. Ályktunin fer fram á tafarlaust vopnahlé, lausn allra gísla og að mannúðaraðstoð fái að flæða óhindrað til fólks á Gaza.

Related Posts
Amani Al Derbi, í miðjunni, sést hér ásamt fjórum börnum sínum. Amani og börn hennar létu lífið í loftárás á Gaza 7. maí 2024. Mynd er úr einkasafni Amani Al Derbi og birt með leyfi.