fbpx

Táknræn jólagjöf og gjafamiðar UN Women í samstarfi við Reykjavík Letterpress

Heim / Fréttir / Táknræn jólagjöf og gjafamiðar UN Women í samstarfi við Reykjavík Letterpress
Jólagjöf UN Women 2018 er unnin í samstarfi við Reykjavík Letterpress og ber heitið Vonarneisti. Vonarneistinn er táknrænt eldspýtnabréf sem stendur fyrir vonina sem kviknar í lífi Róhingjakonu þegar hún leitar til neyðarathvarfs UN Women við Balukhali flóttamannabúðirnar í Bangladess og fær aðstoð við að koma undir sig fótunum á ný.

Rúmlega 400 þúsund Róhingjakonur búa við erfið lífsskilyrði í flóttamannabúðunum við Cox‘s Bazar. Margar þeirra eru ekkjur og einstæðar margra barna mæður, nýbúnar að flýja heimkynni sín í Mjanmar eftir ofsóknir og gróft ofbeldi. Þær þora ekki að fara út úr kofum sínum eða taka þátt í samfélaginu af ótta við ofbeldi nýju aðstæðum.

Þegar þú kaupir vonarneista veitir þú Róhingjakonu í flóttamannabúðunum sæmdarsett sem inniheldur helstu hreinlætisvörur, teppi, vasaljós og vistvæn kol til matseldar og upphitunar. Auk sæmdarsettsins fá Róhingjakonur sem leita til neyðarathvarfs UN Women áfallahjálp, öruggt skjól og atvinnutækifæri.

Samhliða jólagjöfinni voru framleiddir einstakir gjafamerkimiðar UN Women og Reykjavík Letterpress og rennur allur ágóði af sölu þeirra einnig til Róhingjakvenna.

Jólagjöfin og merkimiðarnir fást í gjafaverslun eða í síma 552-6200. Vonarneisti kostar 3.990 og gjafamerkimiðarnir (8 stk. í pakka) kosta 2.590.

Smelltu hér til að kaupa vonarneista Smelltu hér til að kaupa gjafamerkimiða

Sérstakar þakkir fá Jói B. Bjarnason hjá Audioland og Guðmundur Þór Kárason hjá auglýsingastofunni Hvíta Húsinu sem báðir gáfu vinnu sína við vinnslu herferðarinnar. 

Related Posts