Í dag eru rúmlega 2500 manns sem styrkja starf UN Women mánaðarlega. Systralag UN Women á Íslandi er helsta fjáröflunarleið samtakanna. Styrktaraðilar Systralagsins eru á öllum aldri og úr hinum ýmsum áttum. Í ár viljum við kynnast styrktaraðilum okkar nánar og um leið skapa umræðu um jafnrétti kynjanna.
Nafn? Steinþór Helgi Arnsteinsson.
Starf? Er tónlistariðnaðarmaður.
Aldur? 28 ára.
Hvenær gekkstu í Systralagið? Það var eitt sumar, fyrir kannski tveimur árum síðan, þegar kona á Laugaveginum bauð mér inngöngu. Sem mér fannst auðvitað meira en sjálfsagt.
Af hverju að styrkja konur? Það er sorglegt að segja það, en það er vegna þess að þær þurfa á því að halda. Konur eru hópur sem er beittur miklu ranglæti og ójafnrétti, og því þarf auðvitað að breyta.
Hvað þýðir jafnrétti fyrir þér? Réttlæti.
Hvað telur þú að þurfi að gera til að ná fram jafnrétti í heiminum? Baráttan fyrir jafnrétti er fyrst og fremst bylting hugans. Og þetta á við um allt frá hræðilegri meðferð hermanna á konum í Darfur, yfir í kúgun kvenna í mörgum múslimaríkjum og til launamisréttis á Íslandi. Hefðir, feðraveldi og hræðsla við smá breytingar festa í sessi ákveðið ójafnrétti sem ákveðinn hópur er tilbúinn að verja með kjafti og klóm, og sumir gera það án þess að gera sér grein fyrir því. Það er þessi blessaða hugarfarsbreyting sem þarf að eiga sér stað; að hugsa hlutina abstrakt og að setja sig í spor annarra (og aktúalí geta það). Og síðan auðvitað viljann til að breyta og kjarkinn til að framkvæma. Hins vegar þarf að breiða út þessa byltingu hugans með ákveðnum tækjum (vopnum myndu margir segja). Eitt af þessum tólum eru samtök á borð við UN Women, sem virkilega berjast fyrir hugsjónum sem allir þurfa að tileinka sér til að ná fram hinu réttlátasta réttlæti, sem er jafnrétti.