
Ina og dóttir hennar flúðu heimili sitt í Kharkiv í Úkraínu til Moldóvu.
Þeim sem hafa flúið stríðið í Úkraínu heldur áfram að fjölga dag frá degi. Síðan stríðið hófst fyrir meira en mánuði síðan hafa um 4,5 milljónir leitað skjóls nágrannaríkjunum, þar með talið um 411 þúsund í Moldóvu.
UN Women og önnur félagasamtök hafa komið upp móttökubúðum við landamærin þar sem fólk fær heita máltíð, fatnað og upplýsingar um næstu skref.
Bjuggu í stöðugum ótta
Mæðgurnar Nadejda, 63 ára, og Ina, 39 ára, frá Kharkiv, eru á meðal þeirra sem flúið hafa til Moldóvu.
„Við bjuggum við stöðugan ótta. Allan daginn heyrðum við neyðarvarnirnar gjalla og sprengjurnar falla. Það var ómögulegt að vera um kyrrt heima í Kharkiv. Við fluttum okkur um set til ættingja í Vinnytsia [mið-vesturhluta Úkraínu], þar sem við bjuggum í viku. Við héldum til ofan í kjallaranum megnið af tímanum,“ segir Nadejda.
Þegar rússneskar hersveitir gerðu loftárás á flugvöllinn í Vinnytsia þann 6. mars, ákváðu mæðgurnar að halda för sinni áfram til Moldóvu. Með þeim var einnig eiginmaður Nadejdu og 7 ára dóttir Inu, sem er flogaveik.
Eiginmaðurinn enn í Úkraínu
Fjölskyldunni gafst lítill tími til undirbúnings áður en lagt var af stað. Ina pakkaði helstu nauðsynjum og uppáhalds leikfangi dóttur sinnar. Eiginmaður hennar er enn í Úkraínu.
„Ég veit ekki hvað tekur við. Eiginmaður minn varð eftir. Ég flúði með dóttur okkar. Vinir okkar sem urðu eftir í Kharkiv eru enn í felum í kjallaranum sínum. Börnin þeirra eru orðin mikið veik vegna kuldans, þau fá hvergi verkjalyf fyrir þau, þau eru alveg hjálparlaus,“ segir Ina.
Nadejda og eiginmaður hennar vonast til þess að komast til Írlands, þar sem önnur dóttir þeirra býr.
„Ég bjóst aldrei við því að upplifa stríð á minni ævi. Mig langar heim. Tengdadóttir mín ákvað að vera um kyrrt með syni mínum og litla barninu þeirra. Hún ákvað að vera eftir með honum, því hann mátti ekki fara. Núna vonast ég bara eftir því að komast til dóttur minnar á Írlandi.“
Um 6,5 milljón einstaklinga eru á vergangi innan Úkraínu vegna átakanna og um 12 milljónir eru strandaðar í umsetnum borgum og bæjum án helstu nauðsynja eða rafmagns. Ástandið versnar með hverjum deginum sem líður og hjálparstofnanir leggja gríðarlega mikla áherslu á að koma lyfjum, matvælum og vatni til fólks í neyð, þ.m.t. fólks með fatlanir og aldraða sem ekki geta leitað skjóls í neðanjarðarbyrgjum eða farið út eftir vistum.
Þú getur hjálpað með því að senda sms-ið KONUR í síma 1900 og dragast þá 1.900 krónur af reikningi.

