Til hamingju með afmælið!
Nú er tilefni til að fagna því þann 8.mars á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna fagnar UN Women 20 ára afmæli Peking-sáttmálans. Sáttmálinn var undirritaður af 189 aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna. Peking-ráðstefnan stóð yfir í tvær vikur þar sem kvennahreyfingar og þjóðarleiðtogar hvaðanæva úr heiminum unnu saman að einu markmiði, kortleggja hvernig auka mætti jafnrétti kynjanna og valdeflingu kvenna og stúlkna um allan heim. Brotið var blað í sögu kvenréttindabaráttunnar við undirritun sáttmálans sem fól í sér framsækna áætlun í tólf flokkum sem miðaði að bættum hag kvenna og stúlkna um allan heim. Í dag, tuttugu árum síðar, er sáttmálinn enn ein helsta grundvallarstoð í réttindabaráttu kvenna.
Nú er komið að því að hampa þeim sigrum sem hafa áunnist með jafnréttisbaráttunni og halda afrekum kvenna á lofti. Aldrei hafa fleiri stúlkur gengið í skóla og stjórnmálaþátttaka kvenna hefur aukist til muna. En því miður er enn langt í land. Ofbeldi gegn konum og stúlkum er útbreiddasta mannréttindabrot heims, 70% þeirra sem búa við sára fátækt í heiminum eru konur og 600 milljónir kvenna búa í löndum þar sem heimilisofbeldi er ekki refsivert.
Af tilefni 20 ára afmælis sáttmálans hvetur Phumzile Mlambo-Ngcuka, framkvæmdastýra UN Women, allar þjóðir heims til að spýta í lófana. Í ræðu sinni segir hún: „Jafnrétti kynjanna verður að nást fyrir árið 2030. Til að koma í veg fyrir að börn sem fæðast í dag þurfi ekki að bíða í 80 ár eftir fullkomnu jafnrétti í heiminum, þarf að hraða framfaraferlinu. Hingað til hefur það farið fram á hraða snigilsins. Spýtum í lófana og byggjum upp heim þar sem konur, helmingur mannskyns, eru jafnar körlum á öllum sviðum fyrir árið 2030!“
Við hjá UN Women á Íslandi hvetjum ykkur til að fagna þessum merku tímamótum og hvetja ALLA í kringum ykkur til að leggja sín lóð á vogarskálarnar í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna. Berjumst saman fyrir heimi þar sem hver einasta stúlka og kona getur tekið virkan þátt í stjórnmálum, menntað sig, aflað sér tekna og lifað án ótta við ofbeldi. Öðruvísi eiga breytingar sér ekki stað. Valdefling kvenna í þágu mannkyns. Látum það verða að veruleika!
Hanna Eiríksdóttir, starfandi framkvæmdastýra Landsnefndar UN Women á Íslandi, er á leið til New York að sitja árlegan fund kvennanefndar SÞ (Convention on the Status of Women – CSW), sjá meira hér. Fundurinn í ár er tileinkaður afmæli Peking-sáttmálans. Á meðan fundinum stendur heldur Hanna úti opinberri dagbók þar sem hún birtir reglulega hugmyndir og hugrenningar. Við hvetjum ykkur til að fylgjast vel með hér á heimasíðunni, Facebook, Twitter og Instagram. Kassamerkið er #CSW59

