Sjóvá nýr bakhjarl FO herferðarinnar

Heim / Fréttir / Sjóvá nýr bakhjarl FO herferðarinnar
Stella, Jóhann Þórsson, markaðsstjóri Sjóvá, FO

Stella Samúelsdóttir og Jóhann Þórsson við undirritun samstarfssamnings vegna FO herferðar.

UN Women á Íslandi ýtir úr vör nýrri FO herferð á morgun, föstudaginn 2. september. Sjóvá er nýr bakhjarl herferðarinnar og gerir UN Women á Íslandi kleift að senda allan ágóða sölu FO varningsins til verkefna UN Women.

Þetta er í áttunda sinn sem UN Women á Íslandi fer af stað í FO herferð. Herferðin er fyrir löngu orðin flaggskip landsnefndarinnar og í gegnum árin hafa safnast um 80 milljónir króna sem runnið hafa óskipt til verkefna UN Women sem miða að því að uppræta kynbundið ofbeldi.

Ómetanlegur stuðningur

UN Women á Íslandi þakkar stuðninginn og er spennt fyrir samstarfinu við Sjóvá. Það er mikils virði fyrir UN Women á Íslandi að leggja upp í þessa vegferð með Sjóvá, sem leggur mikið upp úr því að hafa jákvæð áhrif á samfélagið með starfsemi sinni.

„Sjóvá er fyrirtæki sem leggur mikla áherslu á samfélagslega ábyrgð og hefur sýnt í verki að það styður heilshugar við mannréttindi. Það er ómetanlegt fyrir okkur hjá UN Women á Íslandi að fá þennan stuðning, sem sýnir líka mikilvægi þess að fyrirtæki styðji við fjölbreytileikann í verki,“ segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.

„Það er okkur mikil ánægja að geta tekið þátt í FO átakinu með UN Women á Íslandi. Þetta er glæsileg og mikilvæg herferð og við erum stolt af því að geta lagt því lið,“ segir Jóhann Þórsson markaðsstjóri Sjóvá, um samstarfið við UN Women á Íslandi.

Related Posts