SADA: Kona er heimili annarrar konu

Heim / Fréttir / SADA: Kona er heimili annarrar konu
Serpil Karakurt, SADA

Serpil Karakurt, stjórnarformaður SADA Cooperative í Gaziantep í Tyrklandi. Mynd/Erlendur Sveinsson

UN Women á Íslandi og 66°Norður heimsóttu SADA Cooperative í borginni Gaziantep í suðurhluta Tyrklands um miðjan september. Tilgangur heimsóknarinnar var að kynnast starfsemi og umgjörð SADA Cooperative betur, en samvinnufélagið er rekið af sýrlenskum flóttakonum í samstarfi við tyrkneskar konur.

COVID hafði áhrif á reksturinn

SADA Cooperative er samvinnuverkefni sem var stofnað í mars árið 2019 með stuðningi frá UN Women,  ASAM (Association for Solidarity with Asylum Seekers and Migrants) og Alþjóðavinnumálastofnunini.

Hugmyndin að SADA Cooperative er sprottin frá konunum sjálfum og er markmið þess að efla atvinnuþátttöku kvenna á svæðinu, efla tengsl á milli flóttafólks og heimamanna og styðja við varanlegt fjárhagslegt sjálfstæði kvennanna.

SADA Cooperative heldur úti þríþættri starfsemi: textíl framleiðslu, leðurvinnslu og veitingaþjónustu. Rekstur samvinnufélagsins hefur verið erfiður síðustu tvö ár vegna COVID-19 og lítið um verkefni handa konunum vegna sóttvarnareglna og samkomutakmarkana.

UN Women á Íslandi og 66°Norður, með stuðningi frá utanríkisráðuneytinu, hafa komið á samstarfi við SADA Coopertive til þriggja ára sem við erum gríðarlega spennt fyrir og hlökkum til að kynna betur fyrir ykkur þegar nær dregur.

Tækifærin fá

Gaziantep er staðsett sunnarlega í Tyrklandi, ekki langt frá landamærum Sýrlands og er borgin þekkt fyrir vefnað sinn, sem kallast kutnu, og einstaka matarmenningu sem er á heimsmynjaskrá UNESCO. Íbúafjöldi borgarinnar eru um 2 milljónir og hefur Gaziantep tekið á móti um hálfri milljón flóttafólks frá Sýrlandi frá árinu 2011, þegar stríðið í Sýrlandi hófst.

Tyrkland er það land í heiminum sem hýsir hvað flest fólk á flótta frá Sýrlandi, eða um 3,6 milljónir. Miðað við íbúafjölda, hýsa borgirnar í suður Tyrklandi hlutfallslega flest flóttafólk. En um 12,2% alls sýrlensks flóttafólks í Tyrklandi er búsett í Gaziantep.

Aðeins 15% af þeim sýrlensku konum sem búsettar eru í Tyrklandi hafa einhverskonar fasta atvinnu. Önnur 12% reyna að framleiða vörur eða taka að sér tilfallandi verkefni gegn greiðslu. Flestar hljóta lág laun fyrir vinnu sína, vinna langa vinnudaga og við óviðunandi aðstæður. Af þeim konum sem ekki eru á vinnumarkaði, formlegum eða óformlegum, segjast aðeins 17% vera í atvinnuleit. Umönnun barna, foreldra eða veikra fjölskyldumeðlima, heimilishald og heilsubrestir eru helstu ástæður þess að sýrlenskar konur komast ekki á atvinnumarkað.

Einstakt verkefni á heimsvísu

SADA, Gaziantep, Tyrkland

SADA Cooperative er rekið í húsnæði í miðbæ Gaziantep.

SADA Cooperative þykir sérstakt fyrir þær sakir að það er rekið í sameiningu af flóttakonum og konum sem tilheyra móttökulandi. SADA Cooperative er rekið með lýðræðislegum hætti; haldnir eru stjórnarfundir og öll mál er varða reksturinn eru borin undir SADA Cooperative meðlimi.

UN Women á Íslandi og 66°Norður heimsóttu SADA Cooperative lok í september, en undirbúningsvinna vegna samstarfsins hefur staðið yfir frá upphafi árs. Það var einstaklega fræðandi að fá að kynnast konunum betur, heyra sögur þeirra og kynnast starfseminni sem þær hafa haldið úti allt frá stofnun SADA Cooperative.

„Kona er heimili annarar konu“

SADA Cooperative konur segja samvinnuverkefnið vera þeim gríðarlega mikilvægt. Það veitir þeim tilgang og þær vonast til þess að geta haft almennilegar tekjur af vinnu sinni þegar fram líða stundir. Þær segja samstarfið hafa slegið á fordómum í garð hverrar annarrar og hafa notið þess að læra af menningu hverrar annarra.

Serpil Karakurt er fædd og uppalin í Gaziantep og er þriggja barna móðir. Hún hefur verið meðlimur SADA Cooperative frá upphafi og er nú stjórnarformaður þess. Hún segir samstöðu meðal kvenna vera henni hjartfólgin. „Kona er heimili annarrar konu. Hún veitir henni öryggi og styrk,“ segir hún þegar hún er beðin um að lýsa SADA Cooperative og andrúmsloftinu sem þar ríkir.

UN Women á Íslandi mun áfram flytja fréttir af framvindu verkefnisins og við hlökkum til að geta kynnt afrakstur þess fyrir ykkur.

Hægt er að fylgja SADA Cooperative á Instagram.

Related Posts
Úkraína, Kiyv