Reynslusaga: Valdi trésmíði því hún er áreiðanleg tekjulind

Heim / Fréttir / Reynslusaga: Valdi trésmíði því hún er áreiðanleg tekjulind
Annet Luka (til vinstri) situr hér með móður sinni fyrir utan heimili þeirra, á trébekknum sem Annet smíðaði. Mynd: UN Women/James Ochwe
„Það er engin iðngrein sérstaklega frátekin fyrir karlmenn. Það sem karlar og strákar geta gert, geta stelpur líka,“ segir Annet Luka, eini kvensmiðurinn í Omugo II flóttamannabyggðinni í Adjumani héraði í Úganda. Þar í landi dvelja 1.644.870 einstaklingar á flótta, nærri 56% þeirra koma frá Suður-Súdan, þaðan sem fólk hefur flúið vopnuð átök og hungur. Annet er ein af þeim.

Annet missti föður sinn þegar hún var aðeins fimm ára gömul. Stuttu eftir það neyddist fjölskylda hennar til að flýja til Úganda vegna átaka í þorpinu þeirra í Suður-Súdan. „Ein af stærstu hindrununum sem ég stóð frammi fyrir var að fá aðgang að menntun,“ segir Annet. „Móðir mín náði að styðja mig í gegnum grunn- og framhaldsskóla, en ég átti fjögur önnur systkini og það var ekki til nóg til að styðja okkur öll.“ Annet hætti í skóla vegna þess að móðir hennar hafði ekki efni á skólagjöldunum.

Í janúar 2024 frétti hún af möguleika til náms fyrir konur og stúlkur á flótta, í gegnum leiðtogaáætlun UN Women sem styrkt er af ríkisstjórn Noregs. „Það var boðið upp á fjölda námskeiða og ég ákvað að skrá mig í trésmíði,“ segir Annet. „Ég valdi trésmíði vegna þess að hún er ekki háð neinum árstíðum, sem gerir hana að áreiðanlegri tekjulind.“

Ákveðið forskot að vera eini kvensmiðurinn

„Margar stúlkur í mínu samfélagi forðast trésmíði og telja að hún sé eingöngu fyrir karlmenn. Jafnvel móðir mín samþykkti hana ekki í upphafi,“ rifjar hún upp. En Annet tókst að sannfæra móður sína og bjó til húsgögn fyrir heimilið. „Nú höfum við bekk til að sitja á sem fjölskylda, eitthvað sem við áttum ekki áður.“

Hún er snjallur frumkvöðull og telur að það að vera eini kvensmiðurinn gefi henni ákveðið forskot. Hana dreymir um að stofna eigið trésmíðaverkstæði og þjálfa aðrar konur og stúlkur.

„Með því að styrkja fleiri konur í trésmíði getum við unnið saman að því að ögra staðalímyndum og byggja upp farsælan starfsferil,“ segir hún.

Lestu meira: Reynslusaga: „Kaus að læra múrverk því þau störf eru betur launuð.“

Hvað gera UN Women í Súdan?


Verkefni UN Women í Súdan hafa breyst með tilkomu stríðsins sem braust út í apríl 2023 og miðast að mestu leyti núna að því að veita mannúðar- og neyðaraðstoð.

Meðal þess sem UN Women gera í Súdan er:

  • Veita þolendum ofbeldis aðgengi að þjónustu í samstarfi við súdönsk félagasamtök (e. provide a connection between the survivor and services).
  • Vinna að því að koma upp one-stop-miðstöðvum fyrir konur og stúlkur á flótta.
  • Skrásetja og afla gagna um kynbundið ofbeldi svo hægt sé að sækja málin til saka á síðari tímum.
  • Bera kennsl á konur og stúlkur í viðkvæmri stöðu svo hægt sé að ábyrgjast að þær hljóti aðgang að mat og öðrum nauðsynjum.
  • Þjálfa starfsfólk félagasamtaka sem veita aðstoð til flóttafólks til að vinna bug á „men and boys first“ hugarfarinu.
  • Bera kennsl á konur með leiðtogahæfileika, efla þær og þjálfa upp í samningaviðræðum. Konurnar hittast fyrst í smærri hópum og ræða málin, komast að sameiginlegri niðurstöðu og kröfum. Þetta er hægt að nýta þegar verið er að semja um frið, fjármagn og aðrar lausnir í samfélagslegri uppbyggingu landsins.
Þú getur lagt þitt af mörkum

FO herferð UN Women á Íslandi 2024 hefur það að markmiði að styrkja verkefni UN Women í Súdan. Þú getur lagt þitt af mörkum með kaupum á FO húfunni 2024.

Með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðili (Ljósberi) UN Women á Íslandi styður þú við verkefni UN Women um allan heim, þar á meðal í Súdan. Þú getur einnig lagt til frjáls framlög:

Í gegnum AUR í númerið 123-839-0700

Leggðu til frjáls framlög í banka:

0537–26–55505

551090-2489

Related Posts