
Poni Grace við störf sín. Hún flúði átök í heimalandi sínu, Suður-Súdan.
Í Úganda dvelja 1.644.870 einstaklingar á flótta, nærri 56% þeirra koma frá Suður-Súdan, þaðan sem fólk hefur flúið vopnuð átök og hungur. Poni Grace var aðeins 16 ára gömul þegar hún flúði heimili sitt í Yei í Suður-Súdan vegna harðnandi átaka. Hún og fjölskylda hennar fundu skjól í Úganda, nánar tiltekið í Imvempi-flóttamannabúðunum í Terego-héraði, þar sem fá atvinnutækifæri var að finna.
„Lífið var erfitt. Fjölskylduna skorti allt og við höfðum engin tækifæri til að afla okkur tekna. Imvempi er hrjóstugt og jafnvel þegar þú reynir að rækta jörðina, þá er uppskeran fátækleg,“ segir Poni Grace.
Greip tækifærið þegar það gafst
Ári eftir að fjölskyldan kom til Úganda giftist Poni. Hún vonaðist til þess að hjónabandið myndi færa sér stöðugleika en eftir að hún fæddi sitt annað barn yfirgaf eiginmaðurinn hana og börnin. Poni átti erfitt uppdráttar og þurfti ekki að hugsa sig um tvisvar þegar henni bauðst að sækja endurmenntunarnámskeið á vegum UN Women (e. Second Chance Education and Skills Training programme).
Poni ákvað að sækja námskeið í múrhleðslu. Ákvörðun hennar kom mörgum á óvart enda er múrhleðsla karllæg atvinnugrein í Úganda. Einhverjir gagnrýndu ákvörðun hennar, en Poni lét það ekki á sig fá. „Ég kaus að læra múrverk og steinhleðslu því þau störf eru betur launuð en mörg önnur,“ útskýrði Poni.
Poni segir þjálfunina hafa umbreytt lífi hennar. Hún starfar við iðnina í dag, ein fárra kvenna, og er þekkt fyrir handbragð sitt og stundvísi. Hún þénar nóg til að sjá fyrir sér og börnum sínum og koma sér upp sparisjóði. „Ég byggði mitt eigið hús frá grunni og börnin mín geta stundað nám við góða skóla,“ segir hún að lokum.
Lestu meira: Reynslusaga: „Get reiknað með 20 viðskiptavinum á dag“

