fbpx

Rafiðnaðarsamband Íslands bakhjarl UN Women á Íslandi

Heim / Fréttir / Rafiðnaðarsamband Íslands bakhjarl UN Women á Íslandi

Aðildarfélög RSÍ samþykktu á þingi sambandsins að gerast bakhjarl UN Women á Íslandi til fjögurra ára við lok Rakarastofuráðstefnu sem haldin var á ársþingi sambandsins á Hótel Natura.

Rafiðnaðarsamband Íslands samþykkti á þingi sínu í gær að gerast bakhjarl landsnefndar UN Women á Íslandi til næstu fjögurra ára. Formaður Rafiðnaðarsambandsins, Kristján Þórður Snæbjarnarson, afhenti UN Women á Íslandi, styrk við lok þingsins í dag, föstudaginn 10. maí.

Þing Rafiðnaðarsambandsins var sett fimmtudaginn 9. maí. Í kjölfar þingsetningar hófst Rakarastofuráðstefna á vegum UN Women á Íslandi undir yfirskriftinni Kynjajafnrétti snertir okkur öll – vertu breytingin, þar sem Magnús Orri Schram, framkvæmdastjóri og stjórnarmaður UN Women, og Þorsteinn V. Einarsson, ritstjóri Karlmennskunnar, héldu erindi en Þórey Vilhjálmsdóttir, stjórnarkona UN Women stýrði fundinum. Að erindum loknum ræddu þátttakendur þingsins í smærri hópum kynbundna mismunun, hvernig virkja megi karlmenn enn frekar í jafnréttisbaráttunni og hvernig  skapa megi menningu þar sem við öll njótum okkar óháð kyni.

Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður RSÍ, segir sambandið leggja mikla áherslu á að fjölga konum í fagstéttum sambandsins enda sé það hagur allra að hafa kynjahlutföllin sem jöfnust. „Við viljum hvað við getum til þess að stuðla að umræðu um jafnréttismál og tryggja að öllum sé tekið opnum örmum í okkar greinum, úti á vinnumarkaði, í félagsstarfinu eða hvar sem við erum. Það að hafa efnt til umræðna um kynjajafnrétti á þingi sambandsins teljum við vera skref í rétta átt, það er heilmikið verkefni framundan hjá okkur og við hlökkum til þessa samstarfs á komandi árum.“

„Við hjá UN Women á Íslandi erum gríðarlega þakklát og stolt af samstarfinu við Rafiðnaðarsamband Íslands. Samstarfið gefur okkur hjá UN Women byr undir báða vængi í baráttunni fyrir bættum mannréttindum kvenna um allan heim,“ sagði Marta Goðadóttir, herferða- og kynningarstýra UN Women á Íslandi. „RSÍ má vera stolt af þessu skrefi og taka þetta eldfima málefni á þingi sínu fyrir sem snertir jú okkur öll.

Markmið Rakarastofuráðstefna UN Women er að skapa rými til að ræða jafnréttismál og hvernig við öll, með sérstakri áherslu á karlmenn og stráka, getum orðið virkari í baráttunni fyrir kynjajafnrétti enda um heildarhagsmuni samfélagsins að ræða.

Related Posts