
Alþjóðlegur dagur ekkna er 23. júní. Ekkjur búa víða við mjög takmörkuð réttindi.
Alþjóðlegur dagur ekkna er í dag, þann 23. júní og er ætlað að varpa ljósi á þær áskoranir og þá mismunun sem ekkjur búa enn við víða um heim.
Í fjölda ríkja eru lagaleg réttindi kvenna, og þar með ekkna, mjög takmörkuð: þær mega ekki erfa eignir eða jarðir, mega ekki eiga bankareikninga, eru án tekna og í sumum tilfellum fá þær ekki að fara með forsjá barna sinna þar sem þau eru talin tilheyra föðurnum og því föðurfjölskyldunni. Í sumum ríkjum eru ekkjur þvingaðar til að giftast ættingja látins eiginmanns síns, t.d. bróður eða frænda, og eru því gróflega sviptar sjálfræði yfir líkama sínum og lífi.
Ekkjum fjölgar samhliða vopnuðum átökum
Mikil aukning í vopnuðum átökum og náttúruhamförum um allan heim hefur fjölgað ekkjum umtalsvert síðastliðin ár. Í Kongó hefur helmingur allra kvæntra kvenna misst maka. Þrjár milljónir kvenna eru ekkjur í Írak og um 70.000 ekkjur búa í Kabúl, höfuðborg Afganistan, við gríðarlega takmörkuð réttindi. Áskoranirnar sem ekkjur standa frammi fyrir eru ólíkar og mismiklar eftir búsetu þeirra og samfélagsstöðu.
Hér eru nokkrar sláandi staðreyndir um stöðu ekkna í heiminum:
- Í fjölda ríkja búa ekkjur ekki við erfðarétt þegar maki þeirra deyr og missa því ekki aðeins fyrirvinnu, heldur einnig heimili sitt og jafnvel forsjá barna sinna.
- Víða eru ekkjur settar á framfærslu fjölskyldu eiginmanns síns, þar sem þær verða að ókeypis vinnuafli og verða oft fyrir líkamlegu og andlegu ofbeldi.
- Á Indlandi standa ekkjur af lægri stéttum uppi allslausar og réttindalausar eftir fráfall maka. Margar eru þvingaðar til að betla sér til matar eða út í vændi.
- Í sumum ríkjum eru ekkjur neyddar til að taka þátt í úreltum og hættulegum hefðum tengdum andláti maka. Í nokkrum ríkjum eru þær þvingaðar til þess að drekka vatnið sem lík eiginmannsins var þvegið upp úr, sem getur leitt til alvarlegra veikinda.
- Konur sem missa maka í stríðsátökum flýja heimili sín oft í kjölfarið og eru berskjaldaðri fyrir kynbundnu ofbeldi og mansali. Þær glíma einnig við áfallið tengt makamissinum.
- Í ríkjum þar sem konum er meinað að vinna eða stofna bankareikninga er ómögulegt fyrir ekkjur að sjá sér og börnum sínum farboða. Þær búa því víða við sárafátækt, sult og heimilisleysi.
UN Women berst fyrir bættum kjörum ekkna með því að þrýsta á lagabreytingar sem tryggja réttindi þeirra. Þá styður UN Women við verkefni víða um heim sem miða að því að tryggja konum og ekkjum atvinnutækifæri og aukið fjárhagslegt sjálfstæði. UN Women veitir jafnframt fræðslu til höfðingja og almennings um skaðleg áhrif siða á borð við þá sem að ofan eru nefndir í von um að útrýma þeim.

