Mikil eyðilegging í Tyrklandi og Sýrlandi eftir jarðskjálfta

Heim / Fréttir / Mikil eyðilegging í Tyrklandi og Sýrlandi eftir jarðskjálfta

Mikil eyðilegging varð í borginni Gaziantep í suður Tyrklandi.

Miklir skjálftar riðu yfir suður Tyrkland og norður Sýrland í nótt og í morgun. Fyrsti skjálftinn átti upptök sín við borgina Gaziantep, í suður Tyrklandi, klukkan 04:17 að staðartíma og mældist 7,8 að stærð. Sá seinni reið yfir klukkan 13:30 að staðartíma og átti upptök sín við borgina Kahramanmaras, sem er rétt norður af Gaziantep. Sá mældist 7,5 að stærð.

Um 1800 hafa látist í skjálftunum, bæði í Tyrklandi og í Sýrlandi, og nærri átta þúsund hafa slasast. Þetta er stærstu skjálftar sem mælst hafa í Tyrklandi frá árinu 1950.

Skjálftarnir hafa valdið mikilli eyðileggingu í borgum og bæjum við landamæri Tyrklands og Sýrlands, þ.m.t. borgum á borð við Gaziantep og Kahramanmaras í Tyrklandi og Aleppó í Sýrlandi. Skjálfarnir voru svo öflugir að íbúar í Ísrael og Líbanon fundu fyrir þeim. Unnið er að björgunarstörfum á hamfarasvæðunum og hefur alþjóðasamfélagið lofað tyrkjum og sýrlendingum aðstoð við björgunarstarf og uppbyggingu.

SADA verkefni UN Women í Gaziantep

UN Women á Íslandi hefur frá upphafi síðasta árs unnið að verkefni í borginni Gaziantep ásamt 66°Norður, UN Women í Tyrklandi og SADA miðstöðinni. Verkefnið miðar að því að efla viðskiptatækifæri SADA miðstöðvarinnar með það að markmiði að miðstöðin verði sjálfbær í rekstri.

SADA miðstöðin er samvinnuverkefni sem rekið er af sýrlenskum flóttakonum í samstarfi við tyrkneskar konur og er ætlað að efla atvinnutækifæri kvenna og samstöðu á milli hópanna. Tyrkland er það ríki í heiminum sem hýsir hvað flest sýrlenskt flóttafólk, eða um 3,5 milljónir. 70% þeirra eru konur og börn. Um hálf milljón sýrlensks flóttafólks býr í Gaziantep, borg sem staðsett er í suðvestur Tyrklandi eða um rúmlega klukkustundar aksturs fjarlægð frá landamærum Sýrlands.

Sýrlenskar flóttakonur glíma við fjölda áskorana er kemur að því að mæta grunnþörfum sínum, takast á við áfallastreitu vegna stríðsins og við að komast inn í tyrkneskt samfélag.  Margar búa undir fátækramörkum og upplifa sig einangraðar. SADA miðstöðin er því gríðarlega mikilvægt verkefni, því þar hljóta konurnar félagslegan stuðning frá hverri annarri og tækifæri til að afla sér tekna og verða fjárhagslega sjálfstæðar.

UN Women á Íslandi og 66°Norður heimsóttu Gaziantep í september og kynntust betur starfsemi SADA miðstöðvarinnar og konunum sem hana reka. Fréttirnar af skjálftanum hafa því verið okkur þungbærar og er hugur okkar hjá samstarfsfólki okkar í Tyrklandi og íbúum hamfarasvæðanna.

 

Related Posts
Photo: UNOCHA/Mohanad Zayat.