Myndir: Snorri Sturluson og Florian Hofer
Myndir: Snorri Sturluson og Florian Hofer

UM HERFERÐINA

UN Women á Íslandi stendur að baki skipulagi og framkvæmdar March Forward, heimsherferðar í þágu jafnréttis.  

Markmið herferðarinnar er að benda á hið gríðarlega bakslag sem orðið hefur í jafnréttismálum undanfarin ár og skapa samtal og samstöðu um jafnrétti. March Forward herferðinni er ætlað að ná augum og eyrum fólks á öllum aldri og öllum kynjum, óháð búsetu. Herferðin verður sýnileg út árið 2025 – en það ár er einmitt lykilár þegar kemur að jafnréttisbaráttunni. Í ár verða 50 ár liðin frá fyrsta Kvennaári Sameinuðu þjóðanna og 30 ár frá því að Peking-sáttmálinn, ein framsæknasta ályktun heimsins þegar kemur að réttindum kvenna og stúlkna, var samþykktur af 189 aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna.  

Herferðin er leidd af UN Women á Íslandi en unnin í samstarfi við hinar tólf landsnefndir UN Women, sem starfræktar eru um allan heim. Ástæðan fyrir því að Ísland leiðir March Forward er sú að Ísland er efst á lista Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) yfir jafnrétti kynjanna og hefur verið í efsta sætinu síðustu 15 ár samfleytt. 

Á listanum er lagt mat á stöðu kynjajafnréttis í 146 löndum út frá stjórnmálaþátttöku, atvinnutækifærum, heilbrigðismálum og tækifærum til menntunar.  

Ísland er leiðandi ríki í jafnréttismálum og getur orðið fyrsta ríki heims til að ná jafnrétti – en til þess þarf samstöðu og hugrekki. Við megum ekki við frekari bakslagi í jafnréttisbaráttunni. Sameinuð tökum við skrefið í átt að jafnrétti öllum til handa!   

Myndir: Snorri Sturluson
Myndir: Snorri Sturluson

March Forward er herferð sem reiðir sig á samstöðu og þátttöku allra! Þú getur verið með í March Forward með því að taka þátt og deila „Backwards Walk“ á þínum samfélagsmiðlum og með því að skrifa undir ákall til stjórnvalda um að þau styðji við aðgerðir í þágu jafnréttis. 

Svona tekur þú þátt á samfélagsmiðlum:

🔺 Taktu upp video af þér þar sem þú:

  1. Gengur nokkur skref aftur á bak – sem tákn um bakslagið í jafnréttismálum
  2. Stoppar í smá stund – sem tákn að nú sé nóg komið
  3. Gengur/marserar áfram nokkur skref – sem tákn um það að eina leiðin héðan í frá er fram á við, að við viljum ekki fara aftur á bak.
  4. Biddu fylgjendur þína um að:
    • Taka þátt í hreyfingunni
    • Skrifa undir áskorunina
    • Verða hluti af mikilvægri vegferð í átt að heimi þar sem fullt jafnrétti ríkir.

🔺 Deildu videoinu á þínum miðlum með eftirfarandi myllumerkjum og taggaðu okkar @unwomenisland: #MarchForward #MoveForward #ForAllWomenAndGirls #WomensRights #GenderEquality #Jafnrétti

Fleiri leiðir til að taka þátt í March Forward:

  • Kaupa varning
  • Styrkja málefnið
  • Deila efni frá herferðinni
  • Halda uppi umræðunni um stöðu jafnréttismála í heiminum, bakslagið og mikilvægi jafnréttis

Við þökkum styrktaraðilum herferðarinnar fyrir að gera hana að veruleika: