Mannúðarkrísan í Súdan fer versnandi með vaxandi hungursneyð og átökum – og konur og stúlkur bera þyngstu byrðarnar.

Heim / Fréttir / Mannúðarkrísan í Súdan fer versnandi með vaxandi hungursneyð og átökum – og konur og stúlkur bera þyngstu byrðarnar.
Starfsfólk Sudanese Coalition For Education for All (SCEFA), sem eru ein af samstarfsaðilum UN Women í mannúðaraðstoð, dreifa eldhúsbúnaði til kvenna á flótta í Alazhri hjálparstöðinni í Port Sudan. Mynd: UN Women/Ekram Hamad Fadlalla

Ný skýrsla UN Women, Gender Snapshot: Women, Food Insecurity, and Famine Risk in Sudan, sýnir að heimili þar sem konur eru í forsvari eru í þrefalt meiri hættu á að upplifa alvarlegan matarskort en heimili þar sem fyrirvinnan er karl. UN Women sendu frá sér fréttatilkynningu í vikunni vegna vaxandi neyðar í Súdan.

Samkvæmt skýrslunni skortir 75% heimila undir stjórn kvenna mat til að mæta grunnþörfum heimilisfólksins. Fjöldi þeirra sem býr við alvarlegan matarskort hefur nær tvöfaldast á einu ári. Aðeins 1,9% heimila þar sem konur eru í forsvari búa við fæðuöryggi. Til samanburðar búa 5,9% heimila undir stjórn karla við fæðuöryggi. Einnig kemur fram að 73% kvenna í landinu fá ekki nægilega fjölbreytta næringu. Þetta ógnar heilsu mæðra og barna.

Neyðarástand ríkir í jafnréttismálum

Þetta neyðarástand má rekja til kerfisbundins kynjamisréttis, sem eykst vegna átaka og fólksflutninga. Sífellt fleiri konur verða fyrirvinna heimilisins – oft vegna dauðsfalls eða hvarfs karlkyns fjölskyldumeðlima – og standa frammi fyrir miklum hindrunum þegar kemur að aðgengi að mat, innkomu og neyðaraðstoð.

„Hungursneyð blasir nú við fólki í nokkrum héruðum landsins, en þetta er ekki aðeins matarskortur. Þetta er líka alvarlegt neyðarástand í jafnréttismálum, sem stafar af skorti á kynjamiðaðri nálgun.“ Þetta segir Salvator Nkurunziza, fulltrúi UN Women í Súdan. „Konur og stúlkur bera þyngstu byrðarnar. Þær hafa síður aðgang að úrræðum og aðstoð og búa við meiri hættu.“

UN Women eykur stuðning sinn við kvenrekin samtök

Á sama tíma standa kvenrekin samtök í fremstu víglínu. Þau sjá um rekstur matarskýla, dreifa máltíðum og styðja fjölskyldur á flótta – oftar en ekki án nægilegs fjárstuðnings. Ein af slíkum samtökum, sem starfa í átta héruðum, hafa neyðst til að loka meira en helmingi eldhúsa sinna vegna fjárskorts.

„Konur eru ekki aðeins fórnarlömb átaka – þær eru drifkraftur breytinga,“ bætir Nkurunziza við. „Kvenrekin samtök ná til jaðarsettra samfélaga og bjarga mannslífum. Samt sem áður fá þau ekki þá viðurkenningu, fjármögnun og aðkomu að ákvarðanatöku sem þau eiga skilið.“

Í ljósi versnandi mannúðarkrísu í Súdan eykur UN Women stuðning sinn við kvenrekin samtök þar. Stofnunin veitir þeim meðal annars mikilvæga þjálfun og leiðsögn, og tryggir virka þátttöku þeirra í neyðaraðstoð.

UN Women beinir ákalli sínu til alþjóðasamfélagsins, mannúðarstarfsfólks og styrktaraðila um að:
  • Setja heimili þar sem konur eru í forsvari og viðkvæma hópa – þar á meðal barnshafandi konur, mæður með börn á brjósti og ungar stúlkur – í forgang við alla mataraðstoð.
  • Styðja við og efla mataraðstoð í umsjón kvenna með sveigjanlegum, beinum og fyrirsjáanlegum fjárveitingum.
  • Tryggja að kvenrekin samtök fái raunverulegt hlutverk í ákvarðanatöku á öllum stigum mannúðaraðstoðar.
  • Tengja mataraðstoð við vernd og endurreisn kvenna. Þar með talið eru aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi og stuðning við atvinnu- og lífsviðurværi kvenna.

UN Women undirstrikar samstöðu sína með fólkinu í Súdan og kallar eftir tafarlausu vopnahléi. Þá hvetur stofnunin alla viðkomandi aðila til að snúa aftur að samningaborðinu og taka þátt í víðtæku friðarferli sem stuðlar að stöðugleika og að mannréttindi séu virt.

Hvernig getur þú hjálpað?  

Mikilvægt er að tryggja að konur og stúlkur í Súdan hljóti þá þjónustu og aðstoð sem þær þurfa nauðsynlega á að halda. Til þess þurfum við fjármagn! Þú getur hjálpað konum og stúlkum í Súdan með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðili eða með því að styðja starf UN Women með stökum styrk. 

Related Posts