
UN Women á vettvangi eftir jarðskjálftann í Paktika, Afganistan, árið 2022. Mynd:UN Women/Sayed Habib Bidel
„Ég stend með afgönsku þjóðinni í kjölfar jarðskjálftans sem reið yfir landið. Ég votta fjölskyldum þeirra er létust mína dýpstu samúð og vona að þau sem slösuðust hljóti skjótan bata. Stofnanir Sameinuðu þjóðanna í Afganistan hafa þegar brugðist við neyðinni og engu verður til sparað svo hægt sé að koma neyðaraðstoð til þeirra sem eru á hamfarasvæðinu,“ sagði Antonío Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, í kjölfar fregna af jarðskjálftanum.
Jarðskjálfti sem mældist um sex að stærð reið yfir austurhluta landsins í gær og olli gríðarlegum skemmdum og mannfalli. Talið er að um 900 einstaklingar hafi látist í hamförunum og mörg þúsund slasast.
Stofnanir Sameinuðu þjóðanna sem starfa á vettvangi greina frá gríðarlegri eyðileggingu í fjórum héruðum í austurhluta landsins, þar á meðal í Nangarhar og Kunar. Jarðskjálftinn reið yfir rétt eftir miðnætti og óttast er að fjöldi fólks sé enn fastur í rústum húsa sinna.
Glíma við gríðarlega fátækt og tíðar hamfarir
Afganar hafa glímt við mikla fátækt og tíðan fæðuskort síðustu ár. Eftirmálar vopnaðra átaka, efnahagshruns og tíðra náttúruhamfara hafa ýtt undir atvinnuleysi, sárafátækt og takmarkað mjög viðnámsþrótt fólks.
UN Women hefur starfað í Afganistan í tæpa tvo áratugi. Meðal helstu verkefna UN Women í Afganistan eru mannréttindagæsla og verkefni sem stuðla að jafnrétti og fjárhagslegu sjálfstæði kvenna og veita alhliða þjónustu til þolenda kynbundins ofbeldis.
Frá valdatöku talíbana árið 2021 hefur UN Women aðlagað starfsemi sína til að mæta breyttum aðstæðum, aukinni ógn, takmörkunum á líf kvenna og stúlkna og þeim gríðarlegu skorðum sem innlendum samstarfsaðilum hafa verið settar. Ýmsar ráðstafanir hafa verið gerðar svo hægt sé að veita áfram þjónustu til kvenna á dreifbýlum svæðum og tryggja að verkefnum sem hafa það markmið að uppræta kynbundið ofbeldi sé framhaldið

