Magnaður kraftur á Milljarður rís

Heim / Fréttir / Magnaður kraftur á Milljarður rís

 MG 0924

Rúmlega 2500 konur, karlmenn og börn risu upp gegn kynbundnu ofbeldi síðastliðinn föstudag 13.febrúar og tóku þátt í femínískri flóðbylgju um land allt af tilefni alþjóðlega viðburðinum „Milljarður rís“.

„Krafturinn var ólýsanlegur, mætingin var vonum framar og stemningin ótrúleg. Það er magnað að sjá þennan fjölda fólks mæta með gleðina að vopni og dansa fyrir mannréttindum kvenna. Dagurinn var fullkominn, meira að segja sólin skein og heiðraði okkur með nærveru sinni,“ segir Hanna Eiríksdóttir starfandi framkvæmdastýra UN Women á Íslandi. Um heim allan eða í rúmlega 200 löndum tóku manneskjur af báðum kynjum á öllum aldri þátt og dönsuðu gegn ofbeldi gegn konum og stúlkum.

Harpa var stútfull af dansandi fólki á öllum aldri en um 1500 manns mættu og rúmlega 1000 manns dönsuðu í Hofi Akureyri, Félagsheimilinu Herðubreið Seyðisfirði, Menntaskólanum á Ísafirði, íþróttahúsi Neskaupsstaðar og Hljómahöllinni í Reykjanesbæ. Allsstaðar mætti fólk í baráttuhug með dansinn að vopni gegn kynbundnu ofbeldi.

Boðið var upp á dagskrá með óvæntum uppákomum í Hörpu. Saga Garðarsdóttir, leikkona var kynnir og leiddi fjöldann í dansíókí, DJ Margeir náði upp þvílíkri stemningu af sinni alkunnu snilld auk þess sem Daníel Ágúst steig á stokk ásamt söngkonunni Ásdísi Maríu. Konfettí-bombur kórónuðu svo partýið í lokalaginu og baráttudansarar gengu skælbrosandi inn í helgina.

„Markmiðið er að ná til sem flestra, að breiða út boðskapinn um mikilvægi aukins kynjajafnréttis í heiminum. Það er gríðarlega mikilvægt að yfir 2500 manns hafið gefið sér tíma til þess að mæta í Hörpu í dag. Að kveikja áhuga fólks á málefnum sem snúa að konum og auka meðvitund þess með gleði og jákvæðni, er ein leið til þess að ná til fólks. Hlutverk UN Women á Íslandi er margþætt. Þó að fjáröflun sé vissulega veigamikill hluti þess starfs er vitundarvakning ekki síður mikilvæg því rót allra breytinga á sér stað í huga hvers og eins. Að koma saman á Milljarður rís og dansa er liður í þeirri baráttu. Það er okkur því mikils virði að sjá þennan fjölda fólks mæta og dansa fyrir jafnrétti og mannréttindum kvenna. Með samtakamætti er okkur allir vegir færir!“ segir Hanna.

Við þökkum Sónar Reykjavík og DJ Margeir kærlega fyrir samstarfið.

Related Posts