Ljósaganga UN Women Íslandi: „Hversu margar konur í viðbót er ásættanlegur fórnarkostnaður?“

Heim / Fréttir / Ljósaganga UN Women Íslandi: „Hversu margar konur í viðbót er ásættanlegur fórnarkostnaður?“

 

Um 150 manns söfnuðust saman við Arnarhól klukkan 17:00 á þriðjudag til að minnast baráttukonunnar Ólafar Töru Harðardóttur. En Ljósaganga UN Women á Íslandi var í ár gengin í minningu hennar. Harpan og Stjórnarráðið voru lýst upp í appelsínugulum lit, en liturinn táknar líf án ofbeldis. Fjölskylda Ólafar Töru leiddi gönguna frá Arnarhóli og að Bríetartorgi ásamt fulltrúum UN Women á Íslandi, Bjarkarhlíðar, Druslugöngunnar, Íslandsdeildar Amnesty International, Kvenréttindafélags Íslands, Kvennaathvarfsins, Rótarinnar, Stígamóta, Vitundar og ÖBÍ.

Ljósaganga UN Women á Íslandi fer fram ár hvert á alþjóðleg­um bar­áttu­degi Sam­einuðu þjóðanna gegn kyn­bundnu of­beldi. Dag­ur­inn mark­ar jafnframt upp­haf 16 daga átaks gegn kyn­bundnu of­beldi. Áhersla átaksins í ár er á stafrænt ofbeldi. Ofbeldi á stafrænum vettvangi, er ekki alltaf kynbundið, en sú tölfræði sem til er, sýnir að konur og stúlkur eru líklegri til að verða fyrir stafrænu ofbeldi en karlmenn. Það bitnar sérstaklega á konum og stúlkum sem búa við fjölþætta mismunun og aktívistum.

 

Orð hafa afleiðingar

Fjölskylda Ólafar Töru minntist hennar og óþrjótandi baráttu hennar gegn kynbundnu ofbeldi í erindi sem flutt var í upphafi Ljósagöngunnar.

„Líklegast fannst ykkur öllum óþægilegt að heyra þessi orð lesin upphátt. Af hverju er það þá samfélagslega viðurkennt að þau séu skrifuð á netinu? Stafrænt ofbeldi er ofbeldi, orð hafa áhrif hvort sem þau eru skrifuð eða sögð. Orð hafa afleiðingar,” sagði fjölskylda Ólafar Töru, en í erindi sínu lásu þau upp hatursfullar athugasemdir sem ritaðar voru um Ólöfu Töru á netinu. Þau hvöttu til aðgerða sem styðja við þolendur og uppræta kynbundið ofbeldi:

„Hversu margar byltingar í viðbót? Hversu margar konur í viðbót er ásættanlegur fórnarkostnaður? Hversu mörg líf í viðbót? Hvað þarf til að kynbundið ofbeldi sé tekið alvarlega og við sjáum raunverulegar aðgerðir í stað innantómra orða?”

Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, tók undir orð þeirra. Hún sagði mikilvægt að stjórnvöld og samfélagið allt bregðist við stafrænu kynbundnu ofbeldi.

„Þetta eru ekki aðeins orð á skjá. Stafrænt ofbeldi rænir fólk öryggistilfinningu, sjálfstrausti og kemur í veg fyrir að það taki fullan þátt í samfélaginu og grefur undan lýðræði. Það bitnar sérstaklega á þeim sem þegar búa við mismunun: konum með fötlun, hinsegin fólki, ungu fólki, baráttukonum á borð við Ólöfu Töru Harðardóttur.”

Göngunni lauk við Bríetartorg, á horni Amtmannsstígs og Þingholtsstrætis, ‏þar sem kórinn Kvennakórinn Katla söng nokkur lög.

 

Átakið stærra í ár en fyrri ár

Aukinn sýnileiki verður í kringum 16 daga átakið gegn kynbundnu ofbeldi í ár en hefur verið hingað til. Atlantsolía er bakhjarl átaksins í ár og mun lýsa valdar bensínstöðvar í appelsínugulu. Auk þess sem efni tengt herferðinni verður sýnilegt á verðskiltum bensínstöðvanna, í útvarpi og á stafrænum miðlum Atlantsolíu. Þá var fjöldi bygginga um allt land lýstur upp í appelsínugula litnum í tilefni átaksins. Þar á meðal kirkjur, listasöfn, háskólar, Harpa menningarhús og Stjórnarráðið.

„Sýnileiki er lykilatriði í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og þegar fyrirtæki á borð við Atlantsolíu ljá rödd sína og birtingar til að tala um stafrænt ofbeldi styrkir það átakið til muna. Það gerir okkur kleift að ná til fleiri og hefur raunveruleg áhrif á umræðuna,“ segir Stella, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.

Rakel Guðmundsdóttir, markaðsstjóri Atlantsolíu, segir mikilvægt að fyrirtæki taki virkan þátt í samfélagslegum verkefnum sem þessum: „Við sem samfélag þurfum að taka skýra og afdráttarlausa afstöðu gegn ofbeldi – í hvaða mynd sem er. Fyrirtæki eru ekki undanskilin þeirri ábyrgð. Með okkar aðkomu viljum við ganga á undan með góðu fordæmi og vonumst til að fleiri fyrirtæki sjái sér fært að leggja hönd á plóg.“

 

Hringdu í eftirfarandi númer til að styðja við 16 daga átakið:

901 7101 til að styrkja um 1.500 kr.

901 7103 til að styrkja um 3.000 kr

901 7105 til að styrkja um 5.000 kr.

901 7110 til að styrkja um 10.000 kr. 

Við bendum einnig á Minningarsjóð Ólafar Töru á Minningoloftara.is, sem hefur það að markmiði að styðja við konurnar sem setja sig í framlínuna og taka slaginn í þágu þolenda.

Myndir/Sunna Ben

Related Posts