Straumur leggur 16 daga átakinu lið

Heim / Fréttir / Straumur leggur 16 daga átakinu lið
Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, og Lilja Ólafsdóttir, framkvæmdastýra Straums.
Ný tækni í posum nýtist baráttunni gegn stafrænu kynbundnu ofbeldi

Straumur, í samstarfi við Adyen og UN Women á Íslandi, býður söluaðilum sínum að taka þátt í 16 daga vitundarvakningu gegn stafrænu kynbundnu ofbeldi. Átakið stendur yfir frá 25. nóvember til 10. desember, og alla þessa daga gefst viðskiptavinum  tækifæri til að styrkja UN Women á Íslandi um 500 kr., 1.000 kr., eða 1.500 kr. Straumur og Adyen tvöfalda síðan áhrifin með því að leggja jafnhátt mótframlag á móti öllum framlögum sem safnast í gegnum posana.

Framlög renna óskipt til UN Women á Íslandi og fara í verkefni sem styðja baráttuna gegn stafrænu kynbundnu ofbeldi. Flæðið í posanum er afar einfalt og lengir ekki afgreiðslu.  

Áhersla lögð á stafrænt ofbeldi í 16 daga átaki UN Women

16 daga átak UN Women gegn kynbundnu ofbeldi(e. 16 Days of Activism against Gender-Based Violence) er alþjóðleg herferð undir merkjum UNiTE to End Violence against Women. Átakið stendur yfir ár hvert frá 25. nóvember til 10. desember. Átakið hefst ár hvert á alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi, þann 25. nóvember. Því lýkur svo á og alþjóðlega mannréttindadeginum, þann 10. desember.

Í ár, þegar liðin eru 30 ár frá undirritun Peking-sáttmálans, er sjónum beint að stafrænu ofbeldi gegn konum og stúlkum. Alþjóðleg yfirskrift átaksins 2025 er því: UNiTE to End Digital Violence against All Women and Girls.

Kynbundið ofbeldi útbreiddasta mannréttindabrot heims

Þrátt fyrir framfarir í jafnréttismálum síðustu þrjá áratugi er kynbundið ofbeldi enn meðal útbreiddustu og alvarlegustu mannréttindabrota heims. Ein af hverjum þremur konum hefur orðið fyrir kynbundnu ofbeldi á lífsleiðinni. Rótgrónar staðalímyndir, skaðleg samfélagsleg viðhorf, veik löggjöf og skortur á fjármagni hamla framförum.

Tækniframfarir síðustu ára hafa ekki aðeins fært samfélögum ný tækifæri heldur einnig opnað rými þar sem kynbundið ofbeldi og áreitni þrífst óáreitt. Stafrænt ofbeldi breiðist út með ógnarhraða og teygir sig inn í alla anga internetsins.

Stafrænt kynbundið ofbeldi hefur víðtæk áhrif

Tvær af hverjum þremur konum hafa orðið fyrir stafrænu kynbundnu ofbeldi. Slíkt ofbeldi hefur veruleg áhrif á heilsu, öryggi og líðan þolenda. Það skerðir jafnframt möguleika kvenna til að taka þátt í opinberu lífi, grefur undan áhrifum þeirra og dregur úr vilja þeirra til að stíga inn í forystuhlutverk.

Samkvæmt gögnum Alþjóðabankans hafa færri en 40% ríkja lög sem vernda konur gegn netáreitni eða netofsóknum. Afleiðingin er sú að 44% kvenna og stúlkna í heiminum, eða um 1,8 milljarðar, hafa enga lagalega vernd gegn slíku ofbeldi.

Stuðningurinn skiptir máli

„Við erum stolt af því að standa með UN Women á Íslandi og nota tæknina til að styðja mikilvægt samfélagsmálefni,“ segir Sveinbjörg Pétursdóttir, leiðtogi viðskiptaþróunar og markaðsmála hjá Straumi. „Við viljum þakka öllum söluaðilum sem taka þátt – stuðningur þeirra skiptir máli.“

Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, hvetur fyrirtæki til að leggja málefninu lið: „Við erum ótrúlega þakklát Straumi fyrir að styðja fjárhagslega við þessa mikilvægu baráttu. Stafrænt kynbundið ofbeldi er ört vaxandi vandamál sem snertir okkur öll. Ég vil nota tækifærið og hvetja fyrirtæki til að skrá sig til þátttöku, það er mjög einföld aðgerð og krefst engrar aukavinnu fyrir fyrirtækin en getur skipt starfsemi okkar öllu.“

Enn er hægt að skrá sitt fyrirtæki til þátttöku á heimasíðu Straums, en í átakinu taka m.a. þátt eftirfarandi söluaðilar: Marc O’Polo, Timberland, Selena undirfaraverslun, hjólaverslanirnar Kría hjól og Hjólasprettur, Tix, Málningarbúðin Ísafirði og Kosmetic snyrtistofa.

Related Posts