Líbanon: Innst inni líður mér eins og ég sé að kafna

Heim / Dæmisögur / Líbanon: Innst inni líður mér eins og ég sé að kafna

Mikill fjöldi fólks er á flótta í Líbanon.

„Sprengingarnar voru svo nærri okkur og óttinn allt umlykjandi,“ segir Zeinab Qabalan Salamieh, 45 ára gömul einstæð móðir með tvö börn. Zeinab býr í Rashidieh Palestine flóttamannabúðunum sem staðsettar eru á suðurströnd Líbanon.

Um 36 þúsund flóttafólk frá Palestínu bjuggu í búðunum, en þær hafa verið gerðar að skotmarki Ísraelshers í Líbanon. Fjöldi fólks hefur flúið til annarra svæða í Líbanon en Zeinab segist ekki hafa fjárhagslegt bolmagn til að flýja.

„Við erum ein í búðunum núna. Ég gat ekki flúið vegna bágrar fjárhagsstöðu. Ég hef ekki efni á neinu, ekki einu sinni brauði. Börnin mín hafa ekki borðað síðan í gær og við vitum ekki hvert við ættum að fara,“ útskýrir hún.

Stríðið sem hófst í október árið 2023 hefur farið stigmagnandi síðan þáog í september síðastliðinn hóf Ísraelsher einnig landhernað í Líbanon. Talið er að um 520 þúsund konur og stúlkur séu á vergangi í Líbanon og í brýnni þörf fyrir neyðaraðstoð. Þá áætlar UN Women að um 11.600 konur séu barnshafandi í Líbanon um þessar mundir og þurfa á aðstoð að halda.

Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið

„Við flúðum ekki með neitt nema skilríkin okkar,“ sagði 33 ára gömul kona að nafni Hanan, sem hafði flúið heimili sitt í Baalbeck í Austur-Líbanon.

„Þetta var erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið. Ég bý við stöðugan ótta um að heimili mitt verði lagt í rúst og ég hef gríðarlegar áhyggjur af þeim fjölskyldumeðlimum sem kusu að verða eftir.“

Hanan og fjölskylda hennar flúðu til Saadnayel þar sem eftirspurn eftir húsnæði hefur þrýst verðlaginu upp.

„Að sættast við þá staðreynd að ég sé á flótta er nógu erfið fyrir mig. Ég upplifi mikla reiði, kvíða og sorg. Ég reyni að vera sterk fyrir fjölskyldu mína og styðja við hana í þessum erfiðu aðstæðum. En ég lýg því ekki að innst inni líður mér eins og ég sé að kafna.“

 

UN Women styður við konur í Líbanon

UN Women rekur landsskrifstofu í Líbanon en líkt og á öðrum neyðarsvæðum hefur starf stofnunarinnar aðlagað sig að breyttum aðstæðum. UN Women vinnur nú að því að veita konum og stúlkum lífsnauðsynlega aðstoð og styður fjárhagslega við kvenrekin félagasamtök í landinu. Þá veitir UN Women konum og stúlkum fjárhagsaðstoð.

 

 

 

Related Posts
Scenes from the Rubkona IDP Camp in South Sudan (Photo: UN Women/James Ochweri)