Kynnir úttekt á vændi fyrir Mannréttindaráði SÞ

Heim / Fréttir / Kynnir úttekt á vændi fyrir Mannréttindaráði SÞ
Gvatemala, kona, bak

Vændi kemur í veg fyrir að raunverulegt janfrétti náist, segir Reem Alsalem, sérstakur fulltrúi SÞ

Brýn þörf er á að alþjóðasamfélagið viðurkenni vændi sem kerfislægt ofbeldi og misnotkun á konum og stúlkum, segir Reem Alsalem, sérstakur fulltrúi Sameinuðu þjóðanna um ofbeldi gegn konum og stúlkum, orsakir þess og afleiðingar (e. Special Rapporteur on violence against women and girls, its causes and consequences). Alsalem kynnti niðurstöður úttektar sinnar um vændi og ofbeldi gegn konum og stúlkum fyrir Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna þann 21. júní síðastliðinn.

„Vændi smættar konur og stúlkur niður í vörur sem látin er ganga kaupum og sölu og viðheldur kerfi mismununar og ofbeldis sem kemur í veg fyrir að raunverulegt janfrétti náist,“ sagði Alsalem er hún fjallaði um niðurstöður sínar.

Konur í viðkvæmri stöðu

Sérstakur fulltrúi notar ekki hugtakið kynlífsvinna (e. sex work/sex worker) í úttekt sinni þrátt fyrir að einhver félagasamtök og einstaklingar sem Alsalem ræddi við teldu það fela í sér meiri virðingu gagnvart konum í vændi og viðurkenningu á því að vændi væri löglegt starf í sumum ríkjum. Alsalem kveðst taka þau sjónarmið til greina en notar þau ekki sjálf þar sem ekki er um að ræða alþjóðlega viðurkennt hugtak og það taki ekki til greina þau fjölmörgu grafalvarlegu mannréttindabrot sem tengjast vændisstarfsemi. Alsalem kýs heldur að nota hugtökin „þolandi“ og „konur og stúlkur í vændi“ (e. prostituted women and girls) þar sem þau endurspegli betur það ofbeldi og þau mannréttindabrot sem þrífast í vændi.

Alsalem lýsir viðkvæmri stöðu margra kvenna og stúlkna í vændi, en margar hafa komið inn í ríki með óhefðbundnum leiðum og eiga því yfir höfði sér fangelsisvist og/eða brottvísun, komist upp um þær. Vændi fylgja alvarlegar heilsufarslegar afleiðingar, m.a. minnistap, þunglyndi, langvarandi svefnleysi, átraskanir, misnotkun eiturlyfja og sjálfsvígshugsanir. Þá eykur það líkur á kynsjúkdómum, þar með talið HIV, grindarbotnseinkennum, þvagfærasýkingum, saurlosi, blöðrubólgu, ófrjósemi, leghálskrabbameini og öðrum sjúkdómum.

Hafa minni samkennd gagnvart konum í vændi

Rannsóknir hafa sýnt að karlmenn sem greiða fyrir kynlífsathafnir hafa minni samkennd gagnvart konum í vændi og telja þær ekki jafnar öðrum konum. Rannsóknir sýna einnig að kaupendur eru meðvitaðir um að konur í vændi séu ekki viljugir þátttakendur í kynlífsathöfnum með þeim, en telja að greiðslan firri þá ábyrgð.

Í úttekt sinni beinir Alsalem einnig sjónum að áhrifum kláms og klámáhorfs á hegðun karlmanna og drengja. Sérstakur fulltrúi segir aukið aðgengi að klámi ýta undir ofbeldishegðun karlmanna í garð kvenna og barna. Karlmenn sem neyttu kláms í miklum mæli voru líklegastir til að beita konur í vændi grófu ofbeldi. Alsalem lýsir yfir áhyggjum af framleiðslu kláms sem búið er til með gervigreind og sýnir ofbeldi gegn konum og börnum. Tæplega 18% af klámi sem búið var til af gervigreind innihélt leitarorðið „skólastúlka“, tæp 10% innihélt leitarorðið „stúlka“ og um 9% orðið „unglingur“. Þessum leitarorðum var oftast skeytt saman við orð sem gáfu til kynna þvingaðar og ofbeldisfullar kynferðislegar athafnir, oftast áttu þau við efnisflokka sem tengdust sifjaspellum. Þá eru til rannsóknir sem sýna að 98% allra djúpfalsana eru af kynferðislegum toga og 99% þolenda djúpfalsana eru konur og stúlkur.

Alsalem varar við því að yfirvöld ríkja heims líti fram hjá þætti kláms í að viðhalda ofbeldi gegn konum og stúlkum. Talið er að um 28.258 einstaklingar á heimsvísu séu að horfa á klám á hverri sekúndu og um 35% af öllu niðurhali á Internetinu er klámtengt. Rannsókn sem gerð var árið 2020 leiddi í ljós að Pornhub var þriðja áhrifamesta tæknifyrirtækið þegar kemur að samfélagslegum áhrifum. Að meðaltali eru drengir ekki nema 12 ára þegar þeir komast fyrst í kynni við klám. Alsalem bendir einnig á samlegðaráhrif aukinnar klámnotkunar og kynferðislegrar misnotkunar á börnum. Sífellt fleiri stúlkur eru neyddar í vændi um allan heim, sumar allt niður í 8 ára gamlar. Alsalem telur að rekja megi fjölgun kynferðisbrota þar sem gerandi er undir lögaldri til stóraukinnar neyslu ungra drengja á klámi.


Konur sem tilheyra minnihlutahóp oftar þolendur

Alsalem bendir einnig á að konur í vændi eru í meirihluta konur sem tilheyra minnihlutahópum, en kaupendur að meirihluta karlmenn sem tilheyra ríkjandi hópum. Í Bandaríkjunum sem dæmi, eru svartar konur, suður-amerískar konur og frumbyggjar (e. indigenous and native) meirihluti kvenna í vændi en hvítir karlmenn meirihluti kaupenda.


Ríkið sem melludólgur

Alsalem gerir lög um vændi einnig að umfjöllunarefni í úttekt sinni og fjallar um ólíkar lagalegar nálganir ríkja er koma að vændi, mansali og kaupum á vændi. Í ríkjum þar sem vændi er löglegt, talar Alsalem um ríkið sem melludólg (e. the „pimping State“) þar sem ríkin hagnist gríðarlega á vændi en bregðist um leið þeim konum og stúlkum sem fluttar eru mansali til ríkjanna og þvingaðar í vændi. Eftirlit með starfsemi þriðja aðila, t.d. vændishúsa, er að jafnaði lítið og því geta ýmis mannréttindabrot þrifist í skjóli þessa.

Samkvæmt Pekingsáttmálanum ber ríkjum að sporna gegn kynbundnu ofbeldi með lögum sem sækja gerendur til saka og tryggja velferð þolenda. Þá kveður CEDAW-sáttmálinn um að ríkjum sé skylt að afnema öll refsilög sem mismuna konum, þar á meðal lög sem refsa konum í vændi. Ríkjum ber einnig skylda að vernda þolendur fyrir frekari skaða og tryggja aðgengi þeirra að félagsþjónustu, menntun, heilbrigðisþjónustu og fjárhagsaðstoð. Þá eiga ríki að sjá til þess að þolendur geti sótt rétt sinn og á það sérstaklega við um þolendur mansals og konur og börn með erlent ríkisfang.

Alsalem telur nauðsynlegt að alþjóðasamfélagið móti skýra stefnu í þessum málum til að tryggja líf og heilsu kvenna og stúlkna. Þá telur hún mikilvægt að alþjóðleg lög um klám og klámframleiðslu verði mótuð og samþykkt sem fyrst.

Related Posts