Konur og jaðarsettir hópar verst úti í flóðunum í Pakistan

Heim / Fréttir / Konur og jaðarsettir hópar verst úti í flóðunum í Pakistan
Pakistan, flóð, Ágúst 2022

Konur og börn yfirgefa heimili sín í Pakistan sem orðið hafa fyrir skemmdum í flóðunum.

Gríðarleg flóð í Pakistan hafa valdið 33 milljónum einstaklinga tjóni. Hjálparsamtök í Pakistan segja konur, stúlkur og jaðarsetta hópar hafa orðið hvað verst úti í þeim náttúruhamförum sem nú eiga sér stað.  

Sameinuðu þjóðirnar hafa sent út neyðarkall sökum ástandsins og hafið neyðarsöfnun til að bregðast við þörfinni. Mest ríður á að tryggja aðgang að hreinu vatni, matvælum, lyfjum og heilbrigðisþjónustu. Óttast er að vatnsbornar sýkingar á borð við iðrasýkinga sem valda uppköstum og niðurgangi breiðist hratt út meðal fólks á hamfarasvæðunum.

Líf barnshafandi kvenna í hættu

Flóðin, sem hófust í júní, hafa farið yfir 72% af landsvæði Pakistan og kostað meira en 1.100 mannslíf. Þau hafa lagt heimili, skólabyggingar og sjúkrastofnanir í rúst. Að auki hafa vegir og aðrir mikilvægir innviðir eyðilagst í vatnsflaumnum. Óttast er að fleiri flóð munu eiga sér stað á næstu vikum og valda enn frekari mannskaða og eyðileggingu.

„Við vitum að konur, stúlkur og jaðarsettir hópar verða hvað verst úti þegar náttúruhamfarir dynja á en eiga jafnframt erfiðast með að nálgast neyðaraðstoð. Barnshafandi konur á hamfarasvæðunum geta ekki fætt börn sín við viðunandi aðstæður þar sem spítalar hafa orðið undir flóðunum. Þetta stefnir lífi þeirra og barna þeirra í hættu,“ var haft eftir Adil Sheraz, sem starfar fyrir hjálparsamtök í Pakistan.

UNFPA (Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna) hefur áætlað að um 650 þúsund barnshafandi konur séu búsettar á hamfarasvæðunum og hafa ekki aðgang að viðunandi heilbrigðisþjónustu.

Ofbeldi eykst í hamförum

Það er staðreynd að kynbundið ofbeldi eykst á tímum hamfara og átaka. Á svæðunum sem verst hafa orðið úti í flóðunum, sefur fólk úti undir berum himni og fjölskyldur hafa splundrast. Þetta ástand gerir konur og stúlkur berskjaldaðri gegn kynbundnu ofbeldi og mansali.

UN Women er á staðnum og vinnur að því að greina þarfir kvenna, stúlkna og jaðarsettra hópa á flóðasvæðunum. UN Women og samstarfsaðilar hafa veitt konum, stúlkum og jaðarsettum hópum neyðaraðstoð á borð við húsaskjól, matvæli, læknisaðstoð og hreinlætisvörur.

Þá hefur UN Women tryggt aðgengi kvenna og stúlkna að lögfræðiaðstoð, áfallahjálp og peningagreiðslum án skilmála.

Hér er hægt að lesa nánar um kynjuð áhrif loftslagsbreytinga.

 

Related Posts
Gvatemala, kona, bakStella, Jóhann Þórsson, markaðsstjóri Sjóvá, FO