Þó karlmenn séu líklegri til að láta lífið í átökum eru konur líkegri til að verða fyrir kynbundnu ofbeldi og nauðgun.
Nauðganir hafa verið nýttar sem stríðsvopn í hundruði ára, en aðeins nýverið skilgreindar sem stríðsglæpur. Og enn hefur aðeins einn fengist sakfelldur fyrir slíka glæpi þó sögur þolenda séu nánast óteljandi. Þolendur fá sjaldan eða aldrei aðstoð, hvorki sálræna né líkamlega, og búa því við sár sín og afleiðingar ofbeldisins út ævina. Í sumum tilfellum eru þolendur gerðir brottrækir úr samfélagi sínu og eiga mjög erfitt uppdráttar sökum stöðu sinnar.
Stríðandi fylkingar hafa stundum vakið athygli á nauðgunum á stríðstímum í þeim tilgangi að vekja upp samkennd og auka stuðning í sinn garð á meðal alþjóðasamfélagsins, en þegar stríðinu er lokið og ekki er hægt að nýta sér þjáningu þolenda lengur í áróðursskyni, gleymast konurnar og hljóta aldrei þá aðstoð sem þær þurfa.
Sagan hefur sýnt að tíðni kynbundins ofbeldis margfaldast í átökum, heimilisofbeldi eykst og kynferðislegt áreiti og -ofbeldi einnig. um 70% kvenna á átakasvæðum hafa orðið fyrir kynbundnu ofbeldi og styðja upplýsingar frá Úkraínu við þessar tölur. Mansal eykst vegna veikrar stöðu fólks og barna á flótta og jafnframt tíðni þvingaðra barnahjónabanda. Konur á flótta (sérstaklega í ríkjum þar sem konur hafa takmörkuð lagaleg réttindi) eru sérstaklega berskjaldaðar fyrir þvinguðu vændi, m.a. til að greiða fyrir húsaskjól, mat, lyf og aðrar nauðsynjar. Dæmi hafa heyrst um að fólk í móttökuríkjum hafi nýtt sér neyð kvenna og barna á flótta frá Úkraínu með þessum hætti.
Stúlka á flótta frá Úkraínu.
Hvað gerir UN Women til að mæta þörfum þolenda á stríðstímum?
- UN Women veitir fjárhagslegan stuðning til kvenrekinna grasrótarsamtaka og kvennaathvarfa svo þau geti haldið úti nauðsynlegri þjónustu til þolenda þegar neyðin er hvað mest
- UN Women hefur að undanförnu lagt aukna áherslu á að veita konum í stríðshrjáðum löndum fjárhagslegan stuðning án skuldbindinga svo þær geti greitt fyrir húsaskjól, matvörur og aðrar nauðsynjar. Konur búsettar á átakasvæðum kölluðu sjálfar eftir slíku úrræði og UN Women hefur brugðist við óskum þeirra. Slíkur stuðningur styrkir sérstaklega stöðu einstæðra kvenna sem búsettar eru í ríkjum þar sem konum er meinaður aðgangur að vinnumarkaði
- UN Women heldur úti fræðslu til höfðingja og foreldra um skaðsemi þvingaðra barnahjónabanda svo hægt sé að fyrirbyggja þau
- UN Women heldur úti heilbrigðisþjónustu fyrir þolendur kynbundins ofbeldis og veitir þeim sálræna aðstoð og áfallahjálp
- UN Women í Moldóvu hefur unnið að því að veita kvenmiðaða neyðarstoð til kvenna sem flúið hafa stríðið í Úkraínu, m.a. með því að koma upp neyðarskýlum sem taka mið af þörfum kvenna og tryggja öryggi þeirra
Stúlkur í Zaatari flóttamannabúðunum.