Kaflaskil á Bessastöðum

Heim / Fréttir / Kaflaskil á Bessastöðum
Í dag tekur Halla Tómasdóttir við embætti forseta Íslands. Hún er önnur konan til að gegna embættinu og verður sjöundi forseti lýðveldisins.
Halla Tómasdóttir – Mynd: Reykjavík Grapevine

Við óskum Höllu til hamingju með daginn og hlökkum til að fylgjast með henni í starfi. Við vonumst jafnframt til að eiga í góðu samstarfi við nýju forsetahjónin, líkt og við höfum átt við fráfarandi forsetahjón, Guðna Th. Jóhannesson og Elizu Reid, síðastliðin átta ár.

Samstarf og samstaða eru meðal lykilþátta sem gera UN Women kleift að sinna mikilvægu starfi sínu. Án öflugra bakhjarla eins og Ljósbera, fyrirtækja, stjórnvalda og einstaklinga sem styðja okkur væri starf okkar nær ómögulegt. Mikilvægt er að málsstaður UN Women nái sem víðast og þar getur skipt sköpum að eiga gott samstarf við einstaklinga sem nýta vettvang sinn til góðra verka. UN Women á Íslandi hefur bæði haft gagn og ánægju af því að njóta stuðnings Elizu Reid í hinum ýmsu verkefnum síðastliðin ár og hefur það verið okkur ómetanlegt.

Eitt af eftirminnilegustu verkefnunum þar sem við nutum krafta Elizu var heimsókn okkar á griðastaði UN Women í Zaatari flóttamannabúðunum í Jórdaníu árið 2017. Eliza Reid, þá nýlega orðin forsetafrú, og Eva María Jónsdóttir, verndari UN Women á Íslandi, voru þá með í för í góðri og gagnlegri ferð. Í kjölfarið hófu UN Women á Íslandi neyðarsöfnun fyrir griðastaðina. Þá setti Eliza mikilvægan viðburð haustið 2022 um bakslagið í réttindabaráttunni, þar sem Sima Bahous framkvæmdastýra UN Women var heiðursgestur, og tók þátt í viðburði um kynbundið ofbeldi og áhrif Me too, með leikkonunni Ashley Judd í nóvember 2023.

Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid eftir innsetningu Guðna í embætti forseta Íslands. Mynd: mbl.is/Ómar

Guðni Th. og Eliza Reid hafa ávallt sýnt UN Women á Íslandi stuðning og hvatt okkur til dáða. Við þökkum þeim fyrir gæfuríkt samstarf og velvildina síðastliðin átta ár og óskum við þeim alls hins besta í nýjum verkefnum.

Related Posts
Jan 26, 2023 - Poipet, Banteay Meanchey Province, Cambodia. Sum Srey Oun prepares dinner for her parents in law in the evening. Photo: UN Women/Nicholas Axelrod