Ný skýrsla um stöðu kynjajafnréttis í Afganistan

Heim / Fréttir / Ný skýrsla um stöðu kynjajafnréttis í Afganistan

Þrjú ár eru liðin frá því að talíbanar tóku völdin í Afganistan í annað sinn. Síðan þá hefur veruleiki kvenna og stúlkna í ríkinu umturnast og búa þær við kúgun, áreiti og ofbeldi. Konur og stúlkur í Afganistan hafa misst öll helstu grundvallarmannréttindi sín, þær mega ekki stunda nám, hafa verið hraktar af vinnumarkaðnum og ferða- og tjáningarfrelsi þeirra hefur verið skert verulega. Öll sú vinna sem hefur verið unnin í átt að jafnrétti kynjanna þar síðastliðna áratugi er orðin að engu og misréttið hefur áhrif á allt þeirra líf.

Afganskar konur. Mynd: UN Women / Sayed Habib Bidel

Núverandi ástand í Afganistan hefur í för með sér fordæmalausar áskoranir á heimsvísu þegar kemur að jafnréttismálum. Frá því í ágúst 2021 hafa talíbanar ráðist í ákaft og kerfisbundið niðurrif á lagalegum og stofnanalegum innviðum Afganistans. Þetta á sérstaklega við um þá sem stutt höfðu framfarir í jafnréttismálum og valdeflingu kvenna sem náðust undir íslamska lýðveldinu Afganistan á árunum 2001 til 2021. Verulegur munur er á innlendum og undirþjóðlegum (e. subnational) stigum. Samt sem áður verður söfnun gagna um jafnrétti kynjanna sífellt erfiðari, sérstaklega í kjölfar vinnubanns á konur sem starfa fyrir frjáls félagasamtök og útvíkkun þessa banns til Sameinuðu þjóðanna.

Ný skýrsla, „Afganistan gender country profile 2024“, sem er unnin með fjárhagslegum stuðningi Evrópusambandsins, gefur yfirlit yfir núverandi stöðu kynjajafnréttis í Afganistan. Í skýrslunni er farið yfir fyrri laga- og stofnanaramma (frá tímabilinu 1978–2021), og núverandi tilskipanir, stefnur og venjur sem móta landslag kynjanna undir stjórn Talíbanastjórnarinnar.

Skýrslan veitir síðan ítarlega greiningu á stöðu kynjanna og viðeigandi tölfræðileg gögn fyrir yfirsýn yfir ríkjandi ástand í landinu. Hún er byggð upp á eftirfarandi sex köflum:

  • Afnám kynbundins ofbeldis (e. ending gender-based violence)
  • Kyn- og frjósemisheilbrigði og réttindi (e. sexual and reproductive health and rights)
  • Efnahagsleg- og félagsleg réttindi og valdefling (e. economic and social rights and empowerment)
  • Jöfn þátttaka og forysta (e. equal participation and leadership)
  • Konur, friður og öryggi (e. women, peace and security)
  • Loftslagsbreytingar og stafræn væðing (e. climate change and digitalization).

Hver kafli útlistar niðurstöður og ráðleggingar. Þá eru tilgreindar helstu áskoranir og tækifæri til að vinna að jafnrétti kynjanna í flóknu stjórnarumhverfi Afganistan í núverandi mynd.

Skýrslan er hluti af aðgerðaráætlun Evrópusambandsins fyrir kynjajafnrétti, the Gender Action Plan in External Action 2021–2027 (GAP III).    

Þessu tengt:

Afghanistan gender country profile (PDF, 1MB)

Executive summary (PDF, 216KB)

Key facts and figures (PDF, 193KB)

Related Posts
Scenes from the Rubkona IDP Camp in South Sudan (Photo: UN Women/James Ochweri)