Kæru velunnarar UN Women

Heim / Fréttir / Kæru velunnarar UN Women

Firildi-Facebook_-_Copy
Græddu smá aukapening og styrktu gott málefni í leiðinni!

Þann 12. september fer í hönd stórt fjáröflunarátak sem við köllum Fiðrildavikuna. Markmið átaksins er að vekja landsmenn til vitundar um stöðu kvenna í þróunarlöndum og á stríðshrjáðum svæðum og fá sem flesta til að styrkja starfið og taka þannig þátt í að bæta líf þessara kvenna.

Við leitum nú til ykkar því verkefnin sem þarf að sinna fyrir þetta átak eru fjölmörg. Eitt af þeim felst í að ganga hús úr húsi og safna styrktaraðilum í Systralagið. Vinnutímabilið er frá 12.-30. september og er unnið í þrjá tíma í senn frá mánudegi til fimmtudags. Einnig verðum við í Kringlunni fimmtudaginn 15. september til laugardagsins 17. september. Greitt er fyrir þessa vinnu.

Ekki er nauðsynlegt að taka alla dagana.

Ef þið hafið áhuga á málefninu og viljið taka þátt í Fiðrildavikunni biðjum við ykkur um að senda tölvupóst á alfheidur@unwomen.is fyrir fimmtudaginn 8. september.

Related Posts