Hinar gleymdu raddir – Áhrif loftslagsbreytinga á ofbeldi gegn konum

Heim / Fréttir / Hinar gleymdu raddir – Áhrif loftslagsbreytinga á ofbeldi gegn konum

CSW66 side eventUN Women á Íslandi og Forsætisráðuneytið standa fyrir hliðarviðburði í tengslum við 66. Kvennanefndarfund Sameinuðu þjóðanna (CSW66) sem fram fer í New York 14.- 25. mars.

Viðburðurinn kallast Hinar gleymdu raddir – Áhrif loftslagsbreytinga á ofbeldi gegn konum (The Forgotten Voices – The Impact of Climate Change on Violence Against Women) og fer fram mánudaginn 14. mars, klukkan 15:00 – 16:00.

Ræða áhrif loftslagsbreytinga á kynbundið ofbeldi

Á viðburðinum verður fjallað um hin sterku tengsl á milli loftslagsbreytinga og kynbundins ofbeldis. Áhrif loftslagsbreytinga munu verða til þess að vopnuðum átökum mun fjölga í framtíðinni. Líkt og breski fréttaritarinn og rithöfundurinn Christina Lamb fjallar um í bók sinni Líkami okkar, þeirra vígvöllur, er kynferðisofbeldi og nauðgunum í auknum mæli beitt sem vopni í stríðsátökum. Þó nauðganir á stríðstímum séu skilgreindar sem stríðsglæpur, heyrir það til undantekninga að gerendur séu dregnir til saka fyrir glæpi sína.

Á málþinginu verður rætt með hvaða hætti loftslagsbreytingar auka líkurnar á vopnuðum átökum innan ríkja og sértæk áhrif þeirra á konur og stúlkur. Meðal þátttakenda eru Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Íslands, Christina Lamb, fréttastjóri erlendra frétta hjá The Sunday Times og margverðlaunaður rithöfundur, Erna Huld Íbrahimsdóttir, þýðandi, túlkur og kynjafræðingur og Tinna Hallgrímsdóttir, formaður Ungra umhverfissinna. Fundarstjóri er Bergur Ebbi Benediktsson, rithöfundur og varaformaður stjórnar UN Women á Íslandi.

Viðburðurinn er rafrænn og hægt er að nálgast hann hér.

Related Posts
eliza reidChristina Lamb