Heimilisofbeldi og kynbundið ofbeldi hefur aukist gríðarlega eftir að heimsfaraldurinn COVID-19 skall á heimsbyggðina og fer tilkynningum fjölgandi.
Samhliða alvarlegum efnahags- og félagslegum áhrifum heimsfaraldursins COVID-19 og aukinni félagslegri einangrun fólks hefur „skuggafaraldur“ kynbundins ofbeldis farið vaxandi um allan heim. Margar konur og stúlkur eru einangraðar og bundnar heima með ofbeldisfullum mökum, vegna samkomu- og útgöngubanna, sem notfæra sér það vald. Á sama tíma hafa konur minni tekjur, færri tækifæri til félagslegra samskipta og takmarkað aðgengi að þjónustu og stuðningi samfélagsins sem takmarkar útgönguleiðir þeirra.
Nýjustu úttektir og rannsóknir benda til þess að þrír mánuðir af útgöngubanni þýði að 15 milljónir kvenna og stúlkna til viðbótar verði beittar kynbundnu ofbeldi. Á sama tíma er fjármagni oft beint frá nauðsynlegri stoðþjónustu á borð við kvennaathvörf og neyðarlínur.
Á heimsvísu hafa yfir 240 milljónir kvenna þurft að þola ofbeldi af hendi nákomnum aðila á síðustu tólf mánuðum. Þessi fjöldi mun að öllum líkindum aukast þar sem áhyggjur af heilsufari og fjárhagslegu öryggi skapa aukna streitu á heimilum sem þegar eru undir miklu álagi.
Faraldurinn hefur hræðileg áhrif á konur og stúlkur með fötlun sem geta átt í erfiðleikum með að tilkynna ofbeldi og misnotkun. Úttektir sýna að konur með fötlun eru helmingi líklegri til að upplifa ofbeldi af hendi samstarfsaðila og fjölskyldumeðlima en konur án fötlunar. Þær eru einnig tíu sinnum líklegri til að vera beittar kynferðisofbeldi. Þess ber að geta að konur á flótta eru einnig í sérstökum áhættuhópi sem áður.
Á sama tíma og 70% þeirra sem eru í framlínunni um allan heim að bjarga mannslífum vegna COVID-19 eru konur, hefur ekkert þríeyki stigið fram til bjargar þeim 137 konum sem myrtar eru af nánum fjölskyldumeðlimi á hverjum einasta degi allan ársins hring. Og ekkert bóluefni virkar gegn kynbundnu ofbeldi.
Vissir þú að?
- 600 milljónir kvenna búa í landi þar sem heimilisofbeldi er ekki refsivert.
- 243 milljónir kvenna 15-49 ára voru beittar ofbeldi af nánum maka árið 2020.
- Fyrir hverja þrjá mánuði í útgöngubanni bætast fimmtán milljónir stúlkna og kvenna í hóp þolenda.
- Á þessu ári er áætlað að yfir fjórar milljónir kvenna og stúlkna muni bætast í hóp þeirra sem eiga í hættu á að vera limlestar á kynfærum sínum
- Gríðarleg aukning er á tilkynningum um heimilisofbeldi í kjölfar COVID-19.
- Það sem af er ári 2021 hefur orðið 23% aukning á tilkynningum um heimilisofbeldi á Íslandi samanborið við meðaltal síðustu þriggja ára
- Heimsfaraldurinn og efnahagskreppan í kjölfarið hans mun ýta 96 milljónum manna í sárafátækt fyrir lok árs 2021. Beinar afleiðingar þess er aukning á þvinguðum barnahjónaböndum og iðkun skaðlegra siða.
UN Women er til staðar fyrir konur og stúlkur.
UN Women vinnur að því að fyrirbyggja ofbeldi gegn konum og stúlkum með fræðslu að vopni, tryggja þolendum viðeigandi aðstoð og stuðla að sterkari löggjöf og framfylgd laga um ofbeldi gegn konum. UN Women veitir tæknilega og fjárhagslega aðstoð við að veita nauðsynlega grunnþjónustu á við kvennaathvörf, neyðarlínur fyrir þolendur ofbeldis og ráðgjöf í gegnum Netið.
Með því að gerast ljósberi tekur þú þátt í að uppræta kynbundið ofbeldi
Þú getur hjálpað!


