Háteigsskóli styður við störf UN Women í Palestínu

Heim / Fréttir / Háteigsskóli styður við störf UN Women í Palestínu

UN Women teymið fer yfir sendingu sem samanstendur af neyðarpökkum handa konum og börnum á Gaza. Mynd: UN Women/Menna Negeda

Á hverju vori stendur unglingastig Háteigsskóla fyrir sérstöku góðgerðarverkefni undir heitinu Okkar hjartans mál. Þá safnar unga fólkið alls kyns hlutum sem þau selja þennan dag og rennur allur ágóði til góðra mála. Í ár munu þau styrkja konur og stúlkur í Palestínu í gegnum starf UN Women á Íslandi. Góðgerðardagurinn fer fram í dag á vorhátíð skólans. Samtökin eru gríðarlega þakklát fyrir þetta góða framtak og stuðninginn. 

Enginn er öruggur á Gaza 

Frá upphafi stríðsins hafa um 35 þúsund einstaklingar verið drepin í árásum Ísraelshers. Sameinuðu þjóðirnar áætla að um 10.000 palestínskar konur verið drepnar, þeirra á meðal voru um 6.000 mæður, sem láta eftir sig um 19.000 umkomulaus börn. 

Ein milljón kvenna og stúlkna eru nú á flótta á Gaza-svæðinu. Flestar hafa leitað skjóls í landamæraborginni Rafah. Fyrir stríð bjuggu um 250.000 íbúar í Rafah-borg, en fjöldinn sem dvelur þar nú telur um 1,4 milljónir. Í maí hóf Ísraelsher árásir á Rafah sem hrakti um hálfa milljón einstaklinga aftur á flótta og mun stórauka neyð þeirra 700.000 kvenna og stúlkna sem þar hafa dvalið. Dag hvern standa konur á Gaza og fjölskyldur þeirra fyrir þeirri erfiðu ákvörðun um hvort þau eigi að færa sig aftur um set og þá hvert.  

Hver er staðan á Gaza? 

  • Meira en milljón einstaklingar eru á barmi hungursneyðar. Verst er staðan í norður Gaza. 
  • Konur og stúlkur á Gaza hafa ekki aðgengi að hreinu vatni, mat, hreinlætisvörum eða salernisaðstöðu. 
  • 10 milljónir dömubinda þarf til að 690.000 konur og stúlkur geti viðhaldið hreinlæti á blæðingum og eftir fæðingu. 
  • Konur á Gaza hafa misst réttinn til einkalífs þar sem þær hafast nú við í fjölmennum neyðarskýlum eða tjöldum. Konur á Gaza hafa heldur ekki skjól á borð við kvennaathvörf sem þær geta leitað til í kjölfar ofbeldis. 
  • Ný örskýrsla UN Women um stöðu kvenna og stúlkna á Rafah leiddi í ljós að 93% kvenna upplifa sig óöruggar á dvalarstað sínum. 80% þeirra glíma við þunglyndi og depurð, 66% segja frá langvarandi svefnleysi og 70% glíma við mikinn kvíða og fá tíðar martraðir. 
  • 72% kvenna með börn á brjósti eiga í erfiðleikum með að framleiða næga mjólk fyrir barnið. 

 

Í skýrslu UN Women lýstu konur í Rafah sorginni sem þær upplifa daglega yfir því að geta ekki verndað börn sín fyrir átökunum né komið í veg fyrir að andlegri og líkamlegri heilsu þeirra hraki. Konur taka að mestu á sig auknar byrðar við að vernda börn og eldra fólk fyrir því gríðarlega álagi sem fylgir því að búa við stöðugt stríðsástand. 

Hvað er UN Women að gera á Gaza? 

UN Women hefur starfað í Palestínu frá árinu 1997 og starfrækt þar ýmis verkefni í þágu kvenna og stúlkna. Við erum á vettvangi og munum áfram veita mikilvægan stuðning og aðstoð í samstarfi við palestínsk kvennasamtök og aðra samstarfsaðila innan mannúðarkerfisins.  UN Women heldur jafnframt úti starfsemi á Vesturbakkanum sem hefur ekki farið varhluta af harðnandi átökum og tíðari árásum á Palestínufólk af hendi landtökufólks og Ísraelshers.  

PWWSD, samstarfsaðili UN Women í Palestínu, veitir sálrænan stuðning, fjárhagsaðstoð og aðra þjónustu fyrir konur og stúlkur í Palestínu. Síðan 7. október 2023 hefur UN Women náð til tæplega 100.000 kvenna og fjölskyldna þeirra með mat, teppi, vetrarfatnað og hreinlætisvörur.   

 UN Women hefur m.a. dreift alhliða neyðarpökkum til mæðra á Gaza og barna þeirra og dreifði einnig 7.803 sæmdarsettum (tíðar- og hreinlætisvörur) í samstarfi við Rauða hálfmánann í Egyptalandi. 

 Þú getur stutt áfram við konur og stúlkur á Gaza með stökum styrk, með AUR í númerið 123-839-0700 eða með því að senda sms-ið KONUR í númerið 1900 (2.900 krónur – virkar ekki fyrir þau hjá Vodafone). 

2.900 krónur veita konu á Gaza neyðarpakka.  

 

UN Women hefur ítrekað kallað eftir því að ályktun 2728 sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti þann 25. mars 2024 verði innleidd strax. Ályktunin fer fram á tafarlaust vopnahlé, lausn allra gísla og að mannúðaraðstoð fái að flæða óhindrað til fólks á Gaza. 

Related Posts