Ofbeldi gegn konum er eitt útbreiddasta mannréttindabrot í heiminum en ein af hverjum þremur konum hefur orðið fyrir ofbeldi á lífsleiðinni. Hvert einasta samfélag í heiminum er þjakað af kynbundnu ofbeldi – á meðan það viðgengst og refsileysi ríkir munu framfarir í jafnréttisbaráttunni ekki eiga sér stað. Kynbundið ofbeldi hefur víðtæk áhrif á samfélög í heilsufarslegu-, efnahagslegu- sem og félagslegu tilliti en þegar konur eru heilbrigðar eru samfélög heilbrigð.

Landsnefnd UN Women á Íslandi styrkir Styrktarsjóð Sameinuðu þjóðanna (UN Trust Fund to End Violence against Women). Sjóðurinn hefur starfað undanfarin tuttugu ár um allan heim að upprætingu á ofbeldi gegn konum og stúlkum. Helstu áherslur sjóðsins eru að koma í veg fyrir ofbeldi gegn konum, tryggja þolendum viðeigandi aðstoð og stuðla að sterkari löggjöf og framfylgd laga um ofbeldi gegn konum.

Styrktarsjóðurinn hefur alla tíð lagt ríka áherslu á að styrkja grasrótarsamtök sem berjast fyrir bættri stöðu kvenna. Sjóðurinn styður starf frjálsra félagasamtaka og samstörf félagasamtaka og stjórnvalda víða um heim. Árlega berast sjóðnum yfir tvö þúsund umsóknir um styrki til verkefna en aðeins 25 verkefni hljóta styrk. Um þessar mundir er 33 virk verkefni starfrækt.