
FO Vettlingarnir 2022 eru komnir í sölu. Ágóði rennur til hinsegin verkefna UN Women.
UN Women á Íslandi kynnir með stolti nýjan FO varning fyrir árið 2022. FO vettlingarnir eru komnir í sölu og rennur ágóðinn til hinsegin verkefna UN Women um allan heim. Sjóvá er nýr bakhjarl herferðarinnar og gerir UN Women á Íslandi kleift að senda allan ágóða sölu FO varningsins til verkefna UN Women.
UN Women er sú stofnun Sameinuðu þjóðanna sem berst fyrir réttindum og hagsmunum hinsegin fólks um allan heim, enda verður jafnrétti ekki náð nema með jöfnum réttindum allra hópa. Hinsegin verkefni UN Women hafa þó verið án fjármagns síðan í maí á þessu ári og því er fjárstuðningurinn sem hlýst af sölu FO vettlingana gríðarlega mikilvægur.
Þetta er í áttunda sinn sem UN Women á Íslandi fer af stað í FO herferð. Herferðin er fyrir löngu orðin flaggskip landsnefndarinnar og í gegnum árin hafa safnast um 80 milljónir króna sem runnið hafa óskipt til verkefna UN Women sem miða að því að uppræta kynbundið ofbeldi.
Frábært samstarf
Vettlingarnir eru hannaðir Védísi Jónsdóttur, prjónahönnuði, og framleiddir af Varma í takmörkuðu upplagi. Vettlingarnir eru úr 100% merínó ull og fáanlegir í tveimur stærðum (S/M og M/L). Vettlingarnir kosta 4.900 krónur og rennur ágóði sölunnar til hinsegin verkefna UN Women.
Hægt er að kaupa vettlingana hér.
Ljósmyndarinn Anna Maggý tók myndirnar fyrir FO herferðina í ár. Þetta er þriðja árið í röð sem Anna Maggý myndar FO herferðarefni UN Women á Íslandi. Andlit herferðarinnar í ár eru mörg og fjölbreytt en eiga það sameiginlegt að tilheyra öll hinsegin samfélaginu á Íslandi. UN Women á Íslandi er gríðarlega þakklátt fyrir þátttöku þeirra og stuðning.

