,,Ástin sigrar“ – Ný FO-herferð UN Women á Íslandi fer í loftið

Heim / Fréttir / ,,Ástin sigrar“ – Ný FO-herferð UN Women á Íslandi fer í loftið

Landsliðskonan Natasha Anasi glæsileg í FO-bolnum. Myndir/Atli Þór

„Það var áskorun að hanna bol fyrir málefni sem er jafn viðkvæmt og staða kvenna og stúlkna í Afganistan er. Við fórum í marga hringi með hönnunina og útlitið og nutum ráðgjafar afganskra kvenna við það, enda þurfti að taka tillit til ýmissa þátta, þar með talið menningarlegra þátta. Útkoman var þessi bolur sem táknar það að jákvæðni og skilningur leiðir gott af sér og ef maður einbeitir sér að því að sjá það fallega í fólki mun ástin sigra að lokum,“ segir hönnuðurinn Helga Lilja Magnúsdóttir. Helga Lilja hannar undir merkjum Helicopter og BAHNS og hannaði nýjan FO-bol fyrir UN Women á Íslandi.

FO-bolurinn styður við starf UN Women í Afganistan en starfsemi stofnunarinnar hefur tekið stakkaskiptum frá því að talíbanar tóku völd í annað sinn þann 15. ágúst 2021. Umfangsmestu verkefni UN Women eru einmitt í Afganistan – skýrt tákn fyrir staðfestu stofnunarinnar um að standa með afgönskum konum og stúlkum og kvenreknum félagasamtökum þar sem þau halda áfram baráttu sinni fyrir réttindum og frelsi.

Sala á bolnum hefst í dag, föstudaginn 12. september, á unwomen.is og í versluninni Kiosk á Granda. Bolurinn kostar 7.990 krónur og rennur allur ágóði til verkefna UN Women í Afganistan.

 

Halda baráttunni áfram þrátt fyrir hótanir

Tíðni kynbundins ofbeldis er nærri þrisvar sinnum hærri í Afganistan en annars staðar í heiminum. Þó ekki sé lengur hægt að afla gagna um kynbundið ofbeldi í Afganistan á áreiðanlegan og öruggan máta, gefa þau gögn sem til eru alvarlega mynd af stöðu mála. Gögn frá 2018 sýndu að 34,7% afganskra kvenna höfðu verið beittar kynbundnu ofbeldi á síðustu tólf mánuðum, samanborið við 13% kvenna á heimsvísu. Persónulegar frásagnir benda til þess að staðan hafi versnað til muna frá árinu 2021. Á sama tíma hefur þjónusta til þolenda verið skorin niður og lagaleg vernd afnumin.

Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, segir mikilvægt að standa með afgönskum konum í baráttunni fyrir mannréttindum sínum. „Þær finna leiðir til að eiga í samtali við talíbanastjórnina til að halda málefnum kvenna og stúlkna á lofti. Þær hafa fundið leiðir til að afla sér tekna og veita lífsnauðsynlega þjónustu til kvenna og stúlkna. Þetta gera þær þrátt fyrir að það ógni lífi þeirra og velferð, þrátt fyrir að hafa orðið fyrir hótunum og fjölskyldum þeirra verið ógnað.“

 

Staðan heldur áfram að versna

Áhrifavaldurinn Gummi Kíró er eitt af andlitum herferðarinnar í ár.

Á þeim fjórum árum sem liðin eru frá því að talíbanar tóku völdin í Afganistan, hafa afganskar konur og stúlkur verið sviptar grundvallarmannréttindum sínum og reisn. Þessar takmarkanir á líf og frelsi afganskra kvenna eru ekki tímabundnar, líkt og stundum hefur verið framhaldið; engin þessara skipana hefur verið afturkölluð. Það er mikilvægt að alþjóðasamfélagið komi í veg fyrir að versta aðför að réttindum kvenna í heiminum verði gert að nýju normi.

Stúlkum er bannað að sækja skóla eftir 13 ára aldur. Konur eru útilokaðar frá flestum störfum og frá stjórnmálum og mega ekki ferðast utan heimilisins nema í fylgd karlkyns ættingja. Margar fá ekki einu sinni að taka eigin ákvarðanir innan veggja heimilisins.

Konur mega ekki leggja stund á læknisfræði í háskólum, reglur koma í veg fyrir að konur megi þiggja læknismeðferð frá körlum – þetta hefur í för með sér konur fá ekki þá heilbrigðisþjónustu sem þær þurfa.

Afleiðingarnar eru skelfilegar. Lífslíkur kvenna hafa dalað og þær lifa lengur við slæma heilsu. Líkur á mæðradauða og barnahjónaböndum hefur aukist, og ofbeldi gegn konum fer vaxandi.

Herferðin er styrkt af Öryggismiðstöðinni, sem stendur straum af öllum framleiðslukostnaði FO-bolsins og gerir UN Women á Íslandi kleift að senda allan ágóða út til verkefna UN Women í Afganistan. Er þetta annað árið í röð sem Öryggismiðstöðin styður við FO-herferð UN Women á Íslandi, en í fyrra aflaði FO-herferðin 8.118.170 króna til verkefna UN Women í Súdan.

FO-útgáfupartý verður haldið í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, í dag á milli 16:30  – 18:30. Boðið verður upp á léttar afganskar veitingar og Aperol Sprtiz og tónlist verður í höndum hins frábæra plötusnúðs, Benna B-Ruff. Öll hjartanlega velkomin.

Kaupa bolinn hér.

Myndir/Atli Þór

 

Rithöfundurinn Embla Bachmann leggur herferðinni lið.

Afganski læknirinn Noorina Khalikyar glæsileg.

Steinunn Radha er í hópi fyrirsæta FO-herferðarinnar.

Ewa Janczak, jógakennari, flott í bolnum.

 

Related Posts