Anna Steinsen kosin nýr stjórnarformaður UN Women á Íslandi

Heim / Fréttir / Anna Steinsen kosin nýr stjórnarformaður UN Women á Íslandi

Ný stjórn UN Women á Íslandi árið 2023.

Aðalfundur UN Women á Íslandi fór fram í nýju húsnæði samtakanna við Sigtún 42, í dag 26. apríl.

Arna Grímsdóttir, lögfræðingur, lét af störfum sem stjórnarformaður UN Women á Íslandi eftir sex ára setu og var Anna Steinsen kosin stjórnarformaður í hennar stað. Þá hætti Kristín Ögmundsdóttir einnig stjórnarsetu eftir sex ára setu, en hún hefur gegnt stöðu gjaldkera. María Rún Bjarnadóttir og Sævar Helgi Bragason voru kosin ný í stjórn UN Women á Íslandi til næstu tveggja ára.

Ég hef verið formaður í sex ár og þessi tími er mér ógleymanlegur. Ég þakka stjórn og ungmennaráði fyrir samstarfið og fyrir að gefa tíma sinn og krafta til UN Women á Íslandi. Ég þakka einnig starfsfólki UN Women á Íslandi fyrir sitt kraftmikla og öfluga starf. Dæmi um hugmyndaauðgi starfsfólks er FO-herferð ársins 2022 sem var söguleg fyrir þær sakir að í fyrsta sinn var safnað í hinsegin sjóð UN Women,“ sagði Arna Grímsdóttir að aðalfundi UN Women loknum.

Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á málefnum kvenna og hef barist fyrir því að allar konur séu valdefldar, óháð stöðu, uppruna og búsetu. UN Women á Íslandi hefur verið að gera frábæra hluti og við viljum gera enn betur í framtíðinni. Ég er mjög spennt fyrir því að taka áfram þátt í þessari vinnu með starfsfólki og stjórn UN Women á Íslandi,“ sagði Anna Steinsen, nýr stjórnarformaður UN Women á Íslandi.

Að loknum aðalfundi er stjórn UN Women á Íslandi nú skipuð: Önnu Steinsen, formanni, Ólafi Elínarsyni, varaformanni, Árna Matthíassyni, gjaldkera, auk þeirra sitja í stjórn Áslaug Eva Björnsdóttir, Ólafur Stephensen, Fida Abu Libdeh, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, María Rún Bjarnadóttir, Sævar Helgi Bragason og Fönn Hallsdóttir, sem fulltrúi ungmennaráðs UN Women á Íslandi.

Stuðningur til verkefna UN Women tæplega 156 milljónir krónur

Á fundinum kom fram að söfnunartekjur UN Women á Íslandi sem sendar voru til stuðnings verkefna UN Women á heimsvísu voru tæplega 156 milljónir króna árið 2022. Þetta er sjöunda árið í röð sem UN Women á Íslandi sendir hæsta fjárframlag allra þrettán landsnefndanna í kjarnasjóð UN Women, óháð höfðatölu. Ber þetta vitni um meðvitund og vilja landsmanna til að bæta stöðu kvenna og jafnréttis um allan heim.

Mánaðarlegir styrktaraðilar UN Women á Íslandi, Ljósberar, voru rúmlega 9.600 í lok ársins 2022 og hafa aldrei verið fleiri. Ljósberar UN Women á Íslandi eru sem fyrr hjarta og hryggjarstykki samtakanna.

UN Women á Íslandi þakkar Örnu Grímsdóttur og Kristínu Ögmundsdóttur fyrir ómetanlegt starf í þágu samtakanna síðastliðin ár.

Related Posts
Súdan, un women, átök