Hjálpum konum í Afganistan

Heim / Fréttir / Hjálpum konum í Afganistan

UN Women á Íslandi hóf í dag neyðarsöfnun fyrir Afganistan. 

Afganistan, HeratAfganskar konur þurfa á stuðningi þínum að halda, meira en nokkru sinni áður. UN Women verður áfram til staðar í Afganistan og mun halda áfram að styðja við konur og stúlkur.

UN Women hefur starfað í 10 ár í Afganistan. Í samstarfi við afgönsk grasrótarsamtök mun UN Women veita áfram lífsbjargandi þjónustu og helstu nauðsynjar til afganskra kvenna og stúlkna. Á því verður engin breyting.

Með því að senda SMS-IÐ KONUR í númerið 1900 (1.900 krónur) styður þú starf UN Women í Afganistan.

Afganskar konur og stúlkur hafa gegnt lykilhlutverki í baráttu fyrir auknum mannréttindum og er það grundvallaratriði að tryggja konum áframhaldandi rödd og að standa vörð um réttindi kvenna og stúlkna í landinu. Að sama skapi verða réttindi kvenna að vera kjarninn í alþjóðlegum viðbrögðum við núverandi ástandi í Afganistan.

UN Women er á staðnum og stendur þétt við bak kvenna og stúlkna í Afganistan á þessum erfiðu tímum. Við höldum áfram að gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja öryggi þeirra og  félagslega-, efnahagslega- og pólitíska þátttöku kvenna í lífi landsins.

Nú þurfa konur og stúlkur í Afganistan öflugan málsvara og stuðning sem aldrei fyrr.

Sendu SMS-IÐ KONUR í 1900 (1900 krónur) og styrktu starf UN Women í Afganistan.

Einnig er hægt að styrkja með frjálsum framlögum í gegnum AUR og KASS í númerið 839-0700 eða á unwomen.is

Related Posts