
Mynd: UN Women/Sayed Habib Bidell
UN Women og CARE International vara í nýrri skýrslu við alvarlegri stöðu afganskra kvenna og stúlkna sem snúa aftur til Afganistan frá Íran og Pakistan – margar gegn eigin vilja. Þeirra bíði versnandi efnahagur og skortur á grunnþjónustu. Því sé nauðsynlegt að grípa þær með neyðaraðstoð og langvarandi stuðningi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu UN Women um stöðu kvenna og stúlkna í Afganistan.
Snúa aftur til heimalandsins allslausar
Síðan í september 2023 hafa meira en 2,43 milljónir afganskra ríkisborgara á flótta snúið aftur til Afganistan frá Íran og Pakistan. Konur og stúlkur eru um þriðjungur þeirra Afgana sem brottvísað hefur verið frá Íran á þessu ári og helmingur þeirra sem snúa aftur frá Pakistan. Margar snúa aftur til lands sem þær hafa aldrei búið í áður og það er ekkert sem bíður þeirra. Þær hafa í engin hús að venda og enga innkomu. Auk þess hafa þær hvorki aðgang að heilbrigðisþjónustu eða menntun. Efnahagskreppa og náttúruhamfarir hafa sett mark sitt á Afganistan. Líkt og aðrar konur og stúlkur í landinu, búa þær sem snúa aftur við aukna hættu á fátækt, nauðungarhjónaböndum, ofbeldi og misnotkun. Hömlurnar sem settar hafa verið á mannréttindi þeirra, ferðafrelsi og frelsi almennt eru fordæmalausar.
„Konur og stúlkur sem koma allslausar inn í samfélög sem þegar búa við mikinn skort standa frammi fyrir gífurlegri hættu.“ Þetta segir Susan Ferguson, sérstakur fulltrúi UN Women í Afganistan. „Þær eru staðráðnar í að byggja upp líf sitt með reisn, en til þess þarf markvissan stuðning og fjármögnun – og við verðum að tryggja að konur í mannúðarstarfi nái til afganskra kvenna og stúlkna.“
Skýrsla Afghanistan Gender in Humanitarian Action Working Group, sem UN Women og CARE leiða í sameiningu, dregur fram bæði brýna og langtíma þörf kvenna og stúlkna í Afganistan.
Helstu niðurstöður skýrslunnar eru:
- Öruggt skjól, lífsviðurværi og menntun stúlkna eru brýnustu þarfirnar að mati afganskra kvenna. Aðeins um 10% fjölskyldna þar sem konur eru fyrirvinnan búa í varanlegu skjóli. Fjórar af hverjum tíu konum óttast að vera reknar á dyr.
- Heimili þar sem konur eru í forsvari og einstæðar konur mæta verulegum hindrunum við að fá mannúðaraðstoð. Það er vegna skerts ferðafrelsis, skorts á skilríkjum og vegna þess að aðstæður eru almennt óöruggar fyrir þær.
- Aðgengi stúlkna að menntun hefur verið skert verulega þar sem öllum stúlkum er bannað að sækja framhaldsskóla í Afganistan.
- Konur í mannúðarstörfum við landamærin gegna lykilhlutverki í að ná til kvenna og stúlkna. Niðurskurður í neyðaraðstoð og ferðatakmarkanir gera þeim þó erfitt fyrir.
Niðurskurður í fjárstuðningi til mannúðaraðstoðar hefur alvarlegar afleiðingar
Alþjóðlegur niðurskurður í fjárstuðningi til mannúðaraðstoðar hefur grafið undan getu hjálparsamtaka til að bregðast við neyðinni. Konur sem starfa við mannúðarstörf á landamærunum lýsa yfirþyrmandi aðstæðum. Fjöldi þeirra sem snýr aftur til landsins er slíkur að þeim tekst vart að mæta grunnþörfum fólksins.
„Að sjá fjöldann sem streymir yfir landamærin og þá miklu erfiðleika sem konur, börn og fjölskyldur glíma við – mörg örvæntingarfull, ringluð og án vonar – hefur haft mikil áhrif á okkur.“ Þetta segir Graham Davison, framkvæmdastjóri CARE í Afganistan. „Þetta er veruleikinn sem teymi okkar á vettvangi horfir upp á á hverjum degi. Við þurfum nauðsynlega fjármagn og stuðning til að veita grunnþjónustu, öruggt skjól og vernd fyrir konur og stúlkur sem snúa aftur.“
Afganistan býr nú þegar við eina verstu mannúðarkrísu heims, þar sem áratugalöng átök, fátækt og náttúruhamfarir hafa haft gífurleg áhrif á samfélagið. Þessi straumur flóttafólks eykur verulega álagið og getur ógnað viðkvæmum samfélögum enn frekar.
UN Women og CARE hvetja alþjóðasamfélagið til að grípa til tafarlausra aðgerða. Mikilvægt er að vernda réttindi afganskra kvenna og stúlkna og fjárfesta í konum í mannúðarstörfum.
Hvernig getur þú hjálpað?
Mikilvægt er að tryggja að konur og stúlkur í Afganistan hljóti þá þjónustu og aðstoð sem þær þurfa nauðsynlega á að halda. Til þess þurfum við fjármagn! Þú getur hjálpað konum og stúlkum í Afganistan með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðili eða með því að styðja starf UN Women með stökum styrk.

