Skattaafsláttur til þeirra er styrkja UN Women á Íslandi

Heim / Fréttir / Skattaafsláttur til þeirra er styrkja UN Women á Íslandi

Mið-Afríkulýðveldir, FONý lög um skattalega hvata til almannaheillastarfsemi voru samþykkt þann 1. nóvember 2021. Lögin veita einstaklingum og fyrirtækjum sem styrkja UN Women færi á því að lækka skatta sína.

Hvað þýða þessar nýju lagabreytingar?

Einstaklingar

Þeir einstaklingar sem styrkja starf UN Women á Íslandi um að lágmarki 10.000 krónur á ári geta nýtt framlag sitt til þess að lækka skattstofn sinn og þannig fengið hluta fjárhæðarinnar tilbaka í gegnum endurgreiðslu skatta.

Hámarksskattafsláttur hjá einstaklingi fæst fyrir 350.000 króna framlag. Fyrir hjón er sú upphæð 700.000 krónur.

Þetta þýðir einnig að ljósberar geta hækkað núverandi framlag sitt, án þess í raun að greiða meira; UN Women hlýtur hærri styrk en gefandinn greiðir í raun áfram sömu upphæð þegar endurgreiðslan hefur skilað sér.

Það hefur því aldrei verið jafn auðvelt að styrkja okkar góða starf og láta gott af sér leiða.

Við hvetjum sem flesta til þess að skrá sig sem ljósbera með því að smella hér og byrja að nýta sér skattaafsláttinn til góðra verka.

UN Women sér síðan um að koma öllum upplýsingum til skattsins ár hvert.

Fyrirtæki

Frádráttur rekstraraðila getur numið 1,5% af rekstrartekjum á því ári sem gjöf er afhent eða framlag er veitt. Þetta gefur þess vegna fyrirtækjum tækifæri á að taka þátt í starfi UN Women og njóta skattaafsláttar á sama tíma.

Vertu ljós í lífi kvenna – vertu ljósberi UN Women.

Related Posts
Eþíópía,CSW, 2019, Kvennanefndafundur, 63