SFS styður við verkefni UN Women í Úkraínu

Heim / Óflokkað / SFS styður við verkefni UN Women í Úkraínu
Úkraína, Kiev, byrgi

Meiri hluti þeirra er flúið hafa stríðið í Úkraínu eru konur og börn. SFS styrkti verkefni UN Women í Úkraínu um 17 milljónir.

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) styðja veglega við verkefni UN Women í Úkraínu.

SFS og fyrirtæki innan þeirra vébanda ákváðu á ársfundi samtakanna þann 6. maí að styrkja þrenn hjálpar- og mannúðarsamtök er starfa í Úkraínu um 130 milljónir króna. UN Women, UNICEF og úkraínsku hjálparsamtökin Caritas deila styrknum á milli sín.

UN Women eru einstaklega þakklát fyrir stuðninginn, enda ríkir gríðarleg þörf fyrir auknum fjármunum til verkefna stofnunarinnar í Úkraínu.

Frá upphafi stríðsins þann 24. janúar hafa um 8 milljónir neyðst til að flýja heimili sín, 90% eru konur og börn. Þar af hafa rúmlega 3,5 milljónir hlotið tímabundna vernd í öðrum ríkjum Evrópu, þ.m.t. Íslandi.

Styðja við berskjölduðustu hópana

Þarfir kvenna í Úkraínu eru ólíkar eftir landssvæðum. Í austurhluta landsins, þar sem átökin eru hvað hörðust, þurfa konur á brýnni neyðaraðstoð að halda. Á öðrum svæðum er áhersla lögð á að tryggja konum á flótta húsnæði, fjárhagslegan stuðning og heilbrigðisþjónustu.

Í byrjun júní höfðu 1,69 milljón einstaklingar hlotið fjárhagsaðstoð án skuldbindingar (e. cash based assistance) í alls 24 héruðum Úkraínu. Slíkur stuðningur gerir fólki kleift að kaupa helstu nauðsynjar og borga húsaleigu.

13.208 konur og stúlkur hlotið sálræna aðstoð

Úkraína, faðmlag

Kona kveður ástvin við landamæri Moldóvu. Konur hafa þurft að skiljast við syni, maka og feður vegna laga sem banna karlmönnum á aldrinu 18 til 60 ára að yfirgefa landið.

Eitt af mikilvægustu verkefnum UN Women í Úkraínu er að styðja við frjáls félagasamtök sem enn eru við störf í Úkraínu. Í maí hafði stuðningur UN Women gert félagasamtökum kleift að veita 13.208 konum og stúlkum sálræna aðstoð og lagalega ráðgjöf.

UN Women kom einnig að þjálfun framlínufólks, m.a. á landamærum Póllands og Moldóvu, við að greina hættumerki um mansal og kynbundið ofbeldi. Slíkt þjálfun eykur öryggi kvenna á flótta sem eru mjög berskjaldaðar stöðu sinnar vegna. UN Women hefur jafnframt barist fyrir því að sértækar þarfir kvenna og stúlkna á flótta séu ávalt hafðar til hliðsjónar þegar neyðar- og mannúðaraðstoð er veitt.

Önnur mikilvæg verkefni UN Women í Úkraínu miða að því að styðja við viðvkæmra hópa, t.d. fólk með fatlanir, Róma fólk og heimilislausa og finna viðunandi húsnæði fyrir þau.

Styrkur SFS gerir UN Women kleift að styðja áfram konur og stúlkur í Úkraínu.

Related Posts