Viltu breyta heiminum?
Við hjá UN Women á Íslandi bætum við okkur hörkuduglegu fólki í öflugt fjáröflunarteymi okkar. Starfið felur í sér að kynna starfsemi UN Women, með því að ganga í hús, og bjóða fólki að styðja við samtökin. Vinnutími er frá 16 – 20 tvö til fjögur kvöld í viku.
Hæfniskröfur:
· Mjög góð samskiptahæfni og hrífandi framkoma
· Samviskusemi og áreiðanleiki
· Reynsla af sölumennsku er kostur
· Áhugi á jafnréttismálum er kostur
· Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Nánari upplýsingar veitir Snædís Baldursdóttir, fjáröflunarstýra UN Women á Íslandi, í síma 552-6200. Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar. Umsóknir sendist á snaedis@unwomen.is.

Related Posts

