Samstarf við utanríkisráðuneytið
Utanríkisráðuneytið hefur lengi átt gott samstarf við landsnefnd UN Women á Íslandi og árið 2014 undirritaði fulltrúi Stjórnarráðs Íslands yfirlýsingu um að fylgja Jafnréttissáttmála stofnunar Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna. Ári síðar var undirritaður samstarfssamningur utanríkisráðuneytisins og landsnefndar UN Women á Íslandi fyrir tímabilið 2016-2018. Í byrjun árs 2019 var samningurinn framlengdur um ár og gildir því til loka árs 2019.
Hvatningaverðlaun jafnréttismála
Markmið með Hvatningarverðlaunum jafnréttismála er að vekja jákvæða athygli á fyrirtækjum sem hafa stuðlað að jafnrétti á markvissan hátt innan sinna fyrirtækja og jafnframt að hvetja önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama.
Jafnréttissáttmáli UN Women
UN Women og UN Global Compact standa að Jafnréttissáttmálanum (e. Women‘s Empowerment Principles).
Jafnréttissáttmálinn er alþjóðleg yfirlýsing og samkomulag á vegum Sameinuðu þjóðanna sem fyrirtæki og stofnanir geta haft að leiðarljósi við innleiðingu ábyrgra starfshátta, óháð landi og atvinnugrein. Viðmiðin snúa fyrst og fremst að kynjajafnrétti.