
Yfirlitsmynd frá Teheran, höfuðborg Íran. Unsplash/Mahyar Motebassem
Fjölmenn mótmæli hafa farið fram víða í Íran síðustu daga vegna andláts hinnar 22 ára Mahsa Amini. Amini lést eftir að hafa verið handtekin af siðgæðislögreglu Írans, en henni var gefið að sök að hafa ekki borið hijab sitt rétt samkvæmt reglum landsins.
Amini var flutt meðvitundarlaus á sjúkrahús skömmu eftir handtöku sína og lést þar þremur dögum síðar. Yfirvöld fullyrtu að hún hafi dáið úr hjartaáfalli, en heimildir fjölmiðla herma að krufning hafi leitt í ljós umtalsverða höfuðáverka og innvortis blæðingar.
30 látið lífið í mótmælum
Konur jafnt sem karlar hafa mótmælt meðferð lögreglu á Amini og hertum siðgæðisreglum, sem þau segja brot á mannréttindum. Konur hafa deilt myndböndum á samfélagsmiðlum þar sem þær kveikja í höfuðslæðum sínum eða klippa hár sitt til að lýsa reiði sinni.
Mannréttindasamtök telja að yfir 30 hafi látið lífið í mótmælunum síðustu sex daga.
UN Women hefur lýst yfir áhyggjum af stöðu mála og segir andlát Amini vera ólýsanlegan harmleik. Ljóst sé að brotið hafi verið á réttindum Amini þegar hún var handtekin og að atburðurinn undirstriki þau skertu réttindi og ofbeldi sem konur og stúlkur búa víða við.
UN Women stendur með réttindum kvenna og stúlkna, alltaf og allstaðar.

