UN Women og Shorts & Docs

Heim / Fréttir / UN Women og Shorts & Docs

Reykjavík Shorts & Docs og UN Women á Íslandi kynna með stolti heimildarmyndina Town of Runners eftir Jerry Rothwell. Myndin fjallar um þrjá efnilega langhlaupara í smábænum Bekoji í Eþíópíu en þar eru ekki ýkja mörg tækifæri sem bíða unga fólksins önnur en að gerast langhlauparar. Unga fólkið vill feta í fótspor þeirra fjölmörgu langhlaupara sem ólust upp í bænum og eru nú meðal bestu hlaupara heims. Á síðustu 20 árum hefur afreksfólk frá Bekoji unnið til 8 gullverðlauna á Ólympíuleikunum, 32 heimsmeistaratitla og slegið 10 heimsmet. Árangrinum er ekki hvað síst að þakka hlaupaþjálfaranum Sentayehu Eshetu sem hefur þjálfað margan heimsmeistarann í langhlaupi til fjölda ára. Sýningin hefst kl. 20.00 í Bíó Paradís, sunnudaginn 6. maí. Frítt er á opnunarmynd Reykjavík Shorts & Docs.rsdflogo

UN Women á Íslandi stendur fyrir móttöku áður en sýningin hefst. Fordrykkur er í boði Gordon’s Gin. Móttakan hefst kl. 19:30.

UN Women vill einnig minna á sýningu heimildarmyndarinnar Sarabah eftir Mariu Luisu Gambale og Gloriu Bremer sem sýnd verður mánudaginn 7.maí kl. 20. Sarabah fjallar um hip-hop söngkonuna Systur Fa sem berst gegn umskurði kvenna (e. FGM) í heimalandi sínu Senegal og fer í herferð um landið til að upplýsa og fræða landa sína en sjálf þurfti hún að gangast undir slíka aðgerð sem ung stúlka.

Að lokinni sýningu myndarinnar mun Hanna Eiríksdóttir,verkefnastýra UN Women, stýra pallborðumræðum um umskurð og lýtalækningar á kynfærum kvenna en lýtalækningar (e. labiaplasty) hafa færst í vöxt á Vesturlöndum hin síðari ár. Meðal þátttakenda í pallborði verða Ebba Margrét Magnúsdóttir, sérfræðingur á kvennadeild Landspítalans,  Inga Hrönn Häsler mannfræðingur og Maya Jakubowicz fulltrúi Women Make Movies.

Related Posts