Ert þú að leita að sumarstarfi?
UN Women á Íslandi leitar að hörkuduglegu og skemmtilegu fólki til starfa í fjáröflunarteymi samtakanna í júní og júlí. Starfið felst í því að kynna starfsemi UN Women og bjóða fólki að gerast styrktaraðilar með götukynningum. Um er að ræða hálft starf og er vinnutími frá 14 -18 alla virka daga.
Hæfniskröfur:
- Mjög góð samskiptahæfni og hrífandi framkoma
- Samviskusemi og áreiðanleiki
- Reynsla af sölumennsku er kostur
- Áhugi á jafnréttismálum er kostur
Nánari upplýsingar veitir Snædís Baldursdóttir, fjáröflunarstýra UN Women á Íslandi, í síma 552-6200. Umsóknir sendist á snaedis@unwomen.is til og með 21. maí.
Related Posts
