UN Women á Íslandi stendur fyrir einstökum viðburði þann 8. mars, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Viðburðurinn fer fram í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll (þar sem Nasa var áður til húsa). Húsið opnar klukkan 14:30 og hefst dagskrá stundvíslega klukkan 15:00.
Það er ærin ástæða til að koma saman og fagna alþjóðlegum baráttudegi kvenna nú í ár, enda er árið 2025 stórt ár í sögu kvennabaráttunnar; 50 ár eru liðin frá Kvennaári Sameinuðu þjóðanna 1975, Kvennaverkfallið á Íslandi átti sér einnig stað sama ár, 30 ár eru liðin frá undirritun Pekingsáttmálans, sem í dag er nefndur leiðarvísir heimsins í átt að jafnrétti, og 15 ár eru liðin frá stofnun UN Women, einu stofnunar Sameinuðu þjóðanna sem vinnur eingöngu að jafnrétti. Þá mun UN Women á Íslandi svipta hulunni af nýrri herferð sem samtökin leiða og hafa unnið að undanfarna mánuði.
Vegna þessa merku áfanga er dagskrá viðburðarins sérlega vönduð, með þátttöku fjölda listafólks og baráttufólks fyrir mannréttindum. Þá mun utanríkisráðherra Íslands, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, halda tölu í tilefni dagsins. Íris Tanja Flygenring og Fannar Arnarson eru kynnar viðburðarins.
Viðburðurinn er styrktur af Reykjavíkurborg, Sendinefnd ESB á Íslandi og Berjaya Iceland Hotels. Sérstakar þakkir hljóta Kvennasögusafn Íslands, Anna Kolfinna Kuran, Tumi Torfason, Karlakórinn Fóstbræður, Kvennakór Reykjavíkur, Domusvox – félagar úr Stúlknakór Reykjavíkur og Aurora og Skólakór Kársness.

