
Þúsund dagar eru liðnir frá því að afgöngskum stúlkum var bannað að sækja framhaldsmenntun.
Tilvonandi háskólanemar víða um Afganistan háðu nýverið inntökupróf í von um að geta sótt nám við háskóla landsins. Menntamálayfirvöld í landinu standa fyrir inntökuprófunum og eru þau aðeins aðgengileg drengjum og körlum. Þetta er þriðja skólaárið sem afganskar stúlkur fá ekki að sækja framhaldsmenntun.
Samkvæmt talíbanastjórn landsins er talið að um 75.000 karlmenn munu hefja nám við háskóla landsins í lok sumars. Frá því að talíbanar hrifsuðu til sín völd í landinu, hafa þeir markvisst unnið að því að takmarka réttindi kvenna og stúlkna, m.a. með því að banna menntun stúlkna eftir 12 ára aldur. Í desember 2022 tilkynnti stjórnin að kvenkyns háskólanemar myndu ekki fá að ljúka námi sínu.
Þann 8. júní verða 1.000 dagar frá því að talíbanastjórnin bannaði stúlkum að sækja sér framhaldsmenntun, ákvörðun sem hefur haft áhrif á framtíð og geðheilsu meira en milljón stúlkna um allt Afganistan.
„Landið mun aldrei ná sér að fullu eftir þessa ákvörðun stjórnarinnar. Það skarð sem hefur verið höggið í menntun kvenna og í atvinnuþátttöku þeirra er gríðarlegt. Allar þær hæfileikaríku konur sem munu aldrei fá að leggja sitt af mörkum í þágu samfélagsins, það verður ekki hægt að bæta upp fyrir þessa ákvörðun. Hvern einasta dag deyja fleiri draumar,“ hafði miðillinn VOA News eftir jafnréttisfulltrúa hjá Human Rights Watch.
Óttast framtíðina
Fyrsta stúlknaskólanum var komið á laggirnar í Afganistan árið 1920. Árið 1991 stunduðu um 7.000 afganskar konur framhaldsnám og um 230.000 stúlkna sóttu grunnskóla. 190 konur gegndu stöðu prófessors og um 22.000 konur störfuðu sem grunnskólakennarar. Árið 2001, í lok fyrri stjórnartíðar talíbana voru færri en milljón barna í skóla, engin stúlka var þeirra á meðal.
Miklir umbreytingatímar tóku við eftir fall talíbana-stjórnarinnar árið 2001 og árið 2004 var ný stjórnarskrá samþykkt í landinu þar sem konum var m.a. tryggð þátttaka á þingi. Árið 2021 sátu 69 konur á afganska þinginu og tóku þátt á flestum sviðum lífsins. Ýmsum lagabreytingum var einnig komið á til að efla réttindi kvenna, þ.m.t. fengu konur loks að vera skráðar sem mæður barna sinna á fæðingarvottorðum þeirra.
Þessar breytingar í þágu jafnréttis hafa nú verið afturkallaðar frá því að talíbanar tóku aftur völd. Af þeim meira en 80 tilskipunum sem stjórnin hefur opinberað, er 54 beint sérstaklega að konum og stúlkum.
Afganskar konur óttast framtíðina en halda ótrauðar áfram að berjast fyrir mannréttindum sínum. UN Women í Afganistan styður við þær með ýmsum verkefnum, en stofnunin hefur haldið áfram að starfa í landinu með leyfi talíbana-stjórnarinnar. Starfsumhverfi UN Women í Afganistan er þó talsvert frábrugðið því sem var og hefur starfsfólk stofnunarinnar þurft að bregðast við síbreytilegum aðstæðum með sveigjanleika og hugmyndaauðgi.

