Ein mikilvæg fjáröflunarleið UN Women á Íslandi er frjáls framlög gangandi vegfarenda í UN Women söfnunarbaukana góðu sem standa víða í verslunum og á

Baldur á Kvennafrídeginum 1975 ásamt eldri dóttur sinni.
veitingahúsum.
En baukarnir tæma sig ekki sjálfir er þeir fyllast. Hinn dásamlegi sjálfboðaliði, Baldur Már Arngrímsson hefur séð um að tæma 20 bauka á eins til tveggja mánaða fresti síðastliðin fimm ár. Frá því hann hóf baukatæmingar fyrir UN Women hefur hann lagt inn tæplega tvær og hálfa milljón króna sem velunnarar UN Women hafa gefið í baukana.
Kæri Baldur, við hjá UN Women á Íslandi erum þér gríðarlega þakklát og þökkum þér innilega fyrir þitt óeigingjarna starf í þágu betra lífs kvenna og stúlkna um allan heim.

